Kurs & Likviditet
Beskrivning
Land | Island |
---|---|
Lista | Mid Cap Iceland |
Sektor | Finans |
Industri | Försäkring |
Sjóvá-Almennar tryggingar hf.: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun
Í viku 4 keypti Sjóvá 625.000 eigin hluti að kaupverði 23.250.000 kr. eins og nánar er greint frá hér á eftir:
Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð (gengi) | Kaupverð (kr.) |
28.01.2022 | 09:32:05 | 625.000 | 37,2 | 23.250.000 |
Samtals | 625.000 | 23.250.000 | ||
Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem tilkynnt var um í Kauphöll þann 27. janúar 2022.
Sjóvá átti 46.470.512 eigin hluti fyrir viðskiptin og eiga að þeim loknum 47.095.512 eigin hluti eða sem nemur 3,72% af útgefnum hlutum í félaginu.
Sjóvá hefur keypt samtals 625.000 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 0,05% af útgefnum hlutum í félaginu og nemur heildarkaupverð þeirra 23.250.000 kr. Endurkaup samkvæmt áætluninni munu nema að hámarki 7.403.211 hlutum þannig að eigin hlutir nemi að hámarki 4,25% af útgefnum hlutum í félaginu. Heildarkaupverð má þó ekki vera hærra en 250.000.000 kr. Endurkaupaáætlunin er í gildi til og með 30. júní 2022, nema skilyrði um hámarkskaup verði uppfyllt fyrir þann tíma.
Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar verður í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995, II. kafla viðauka við reglugerð nr. 630/2005 um innherjaupplýsingar og markaðssvik, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021.
Nánari upplýsingar veitir:
Andri Már Rúnarsson í síma 772-5590 eða á netfangið fjarfestar@sjova.is