Kurs & Likviditet
Beskrivning
Land | Island |
---|---|
Lista | Mid Cap Iceland |
Sektor | Finans |
Industri | Försäkring |
Í viku 14 keypti Sjóvá 917.936 eigin hluti að kaupverði 34.028.806 kr. eins og nánar er greint frá hér á eftir:
Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð (gengi) | Kaupverð (kr.) |
4.4.2022 | 15:29:43 | 162.936 | 37,40 | 6.093.806 |
6.4.2022 | 09:55:29 | 21.027 | 37,00 | 777.999 |
6.4.2022 | 10:23:41 | 730.000 | 37,00 | 27.010.000 |
6.4.2022 | 11:07:45 | 3.973 | 37,00 | 147.001 |
Samtals | 917.936 | 34.028.806 | ||
Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem tilkynnt var um í Kauphöll þann 25. febrúar 2022.
Sjóvá átti 60.136.330 eigin hluti fyrir viðskiptin og eiga að þeim loknum 61.054.266 eigin hluti eða sem nemur 4,82% af útgefnum hlutum í félaginu.
Sjóvá hefur keypt samtals 7.862.472 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 0,62% af útgefnum hlutum í félaginu og nemur heildarkaupverð þeirra 276.356.293 kr. Endurkaup samkvæmt áætluninni munu nema að hámarki 16.527.124 hlutum þannig að eigin hlutir nemi að hámarki 5,5% af útgefnum hlutum í félaginu. Heildarkaupverð má þó ekki vera hærra en 500.000.000 kr. Endurkaupaáætlunin er í gildi til og með 30. júní 2022, nema skilyrði um hámarkskaup verði uppfyllt fyrir þann tíma.
Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar verður í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995, II. kafla viðauka við reglugerð nr. 630/2005 um innherjaupplýsingar og markaðssvik, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021.
Nánari upplýsingar veitir:
Andri Már Rúnarsson í síma 772-5590 eða á netfangið fjarfestar@sjova.is