Kurs & Likviditet
Beskrivning
Land | Island |
---|---|
Lista | Mid Cap Iceland |
Sektor | Finans |
Industri | Försäkring |
Sjóvá-Almennar tryggingar hf.: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun – lok endurkaupaáætlunar
Í viku 4 keypti Sjóvá 1.623.823 eigin hluti að kaupverði 60.430.903 kr. eins og nánar er greint frá hér á eftir
Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð (gengi) | Kaupverð (kr.) |
24.1.2022 | 09:34:19 | 625.000 | 37,20 | 23.250.000 |
25.1.2022 | 10:00:39 | 26.260 | 36,60 | 961.116 |
25.1.2022 | 10:13:38 | 145.000 | 36,60 | 5.307.000 |
25.1.2022 | 10:26:00 | 7.587 | 36,60 | 277.684 |
25.1.2022 | 12:45:20 | 40.000 | 36,60 | 1.464.000 |
26.1.2022 | 14:19:42 | 625.000 | 37,40 | 23.375.000 |
27.1.2022 | 09:33:09 | 154.976 | 37,40 | 5.796.102 |
Samtals | 1.623.823 | 60.430.903 |
Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem tilkynnt var um í Kauphöll þann 7. janúar 2022.
Sjóvá átti 44.846.689 eigin hluti fyrir viðskiptin og eiga að þeim loknum 46.470.512 eigin hluti eða sem nemur 3,67% af útgefnum hlutum í félaginu.
Kaupum samkvæmt endurkaupaáætlun er nú lokið. Sjóvá hefur keypt samtals 6.649.186 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 0,52% af útgefnum hlutum í félaginu og nemur heildarkaupverð þeirra 249.999.986 kr. Endurkaup samkvæmt áætluninni máttu nema að hámarki 7.714.312 hlutum þannig að eigin hlutir nemi að hámarki 3,75% af útgefnum hlutum í félaginu. Heildarkaupverð mátti þó ekki vera hærra en 250.000.000 kr.
Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995, II. kafla viðauka við reglugerð nr. 630/2005 um innherjaupplýsingar og markaðssvik, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021.
Nánari upplýsingar veitir:
Andri Már Rúnarsson í síma 772-5590 eða á netfangið fjarfestar@sjova.is