Bifogade filer
Kurs & Likviditet
Beskrivning
Land | Island |
---|---|
Lista | Small Cap Iceland |
Sektor | Telekom & Media |
Industri | Telekommunikation och -tjänster |
2022-03-15 13:47:01
Leiðrétt tillaga stjórnar um lækkun hlutafjár
Í útsendri dagskrá aðalfundar Sýnar hf. 2022 kom fram að stjórn legði til lækkun hlutafjár sem næmi öllum eigin hlutum í eigu Sýnar hf. við lok framkvæmdar endurkaupaáætlunar. Yrðu fjárhæðir birtar í endanlegum tillögum til aðalfundar. Í endanlegum tillögum misritaðist sú fjárhæð sem er í eigu félagsins. Rétt er að félagið á samtals hlutafé sem nemur kr. 280.645.120 að nafnvirði eða sem nemur 9,47% af útgefnu hlutafé félagsins. Til samræmis er lagt til að hlutafé félagins lækki úr kr. 2.964.414.740 að nafnvirði í kr. 2.683.769.620 að nafnvirði. Leiðréttist þetta hér með, sbr. meðfylgjandi viðhengi sem auðkennt er: "Leiðrétt tillaga stjórnar til aðalfundar 2022 um lækkun hlutafjár".