Kurs & Likviditet
Beskrivning
Land | Island |
---|---|
Lista | Small Cap Iceland |
Sektor | Telekom & Media |
Industri | Telekommunikation och -tjänster |
Á aðalfundi Sýnar hf. þann 18. mars 2022 var samþykkt tillaga stjórnar félagsins um að lækka hlutfé félagsins. Fundurinn samþykkti að hlutafé félagsins verði lækkað um kr. 280.645.120 að nafnvirði, einvörðungu til lækkunar eigin hluta á grundvelli ákvæða laga nr. 2/2995, um hlutafélög. Hlutafé félagins lækkar þar með úr kr. 2.964.414.740 að nafnvirði í kr. 2.683.769.620 að nafnvirði. Þar sem hver hlutur er að fjárhæð kr. 10,- að nafnverði eða margfeldi þeirrar fjárhæðar, verða útgefnir hlutir í Sýn hf. samtals 268.376.962 eftir lækkunina. Lækkunin nemur öllu hlutafé sem félagið hafði keypt á grundvelli heimildar sem samþykkt var á aðalfundi Sýnar hf. þann 19. mars 2021 til að kaupa eigin hluti.
Beiðni hefur verið send á Nasdaq og mun lækkunin verða framkvæmd 12. apríl 2022.
Að öðru leyti er vísað er til tilkynningar félagsins sem birtist í fréttakerfi Kauphallar þann 18. mars 2022 þar sem greint er frá niðurstöðum aðalfundar.
Nánari upplýsingar veitir fjarfestatengsl@syn.is.