21:03:28 Europe / Stockholm

Kurs & Likviditet

Kursutveckling och likviditet under dagen för detta pressmeddelande

Kalender

2023-05-10 Kvartalsrapport 2023-Q1
2023-03-17 Årsstämma 2023
2023-02-15 Bokslutskommuniké 2022
2022-11-02 Kvartalsrapport 2022-Q3
2022-08-30 Kvartalsrapport 2022-Q2
2022-05-11 Kvartalsrapport 2022-Q1
2022-03-18 Årsstämma 2022
2022-02-16 Bokslutskommuniké 2021
2021-11-03 Kvartalsrapport 2021-Q3
2021-09-01 Kvartalsrapport 2021-Q2
2021-05-12 Kvartalsrapport 2021-Q1
2021-02-24 Bokslutskommuniké 2020
2020-11-04 Kvartalsrapport 2020-Q3
2020-08-26 Kvartalsrapport 2020-Q2
2020-05-13 Kvartalsrapport 2020-Q1
2020-03-20 Årsstämma 2020
2020-02-26 Bokslutskommuniké 2019
2019-10-30 Kvartalsrapport 2019-Q3
2019-08-21 Kvartalsrapport 2019-Q2
2019-05-09 Kvartalsrapport 2019-Q1
2019-03-25 Ordinarie utdelning SYN 0.00 ISK
2019-03-22 Årsstämma 2019
2019-02-27 Bokslutskommuniké 2018

Beskrivning

LandIsland
ListaSmall Cap Iceland
SektorTelekom & Media
IndustriTelekommunikation och -tjänster
Sýn är ett telekombolag. Idag erbjuder bolaget ett brett utbud av mobila tjänster, abonnemang, fast- och mobilt bredband, övriga IP-lösningar, samt tillhörande support och tjänster. En stor del av bolagets tjänster nås digitalt och kunderna återfinns både bland privat – och företagskunder, med störst verksamhet på den isländska marknaden. Bolaget kom till vid en sammanslagning av Vodafone Island och bolagen som gick under 365 koncernen.
2022-07-13 17:53:14

Nova hf. og Sýn hf. hafa í dag, 13.07.2022, undirritað samning um samstarf félaganna við uppbyggingu og samnýtingu sendastaða vegna 5G uppbyggingar. Samningurinn gildir til ársloka 2028 og kveður á um uppbyggingu og samnýtingu á 200 5G sendum á samningstímanum og skilmála samstarfs aðila.

Samningurinn byggir að hluta til á og kemur til viðbótar við samstarf félagana frá árinu 2016 um sameignlega uppbyggingu og rekstur 2G, 3G og 4G þjónustu.

Á grundvelli samningsins mun hvort félag byggja, taka í notkun og reka 100 sendastaði með 5G þjónustu, að meðtöldum þeim sendum sem þegar hafa verið byggðir. Samningurinn nær því til samtals 200 5G senda um land allt.

Samningurinn kveður á um að hvorum aðila sé gert kleift að nýta senda hins aðilans fyrir 5G þjónustu. Þá er ekki gert ráð fyrir fjárhagslegu uppgjöri milli félaganna þar sem jöfn skipting kostnaðar og samnýtingar er fyrirhuguð.  Þá er hvorum aðila um sig  heimilt að selja í heildsölu aðgang til þriðja aðila að sendum.

Ákveðið er að uppbygging allra senda verði lokið í árslok 2024 og er hvor aðili skuldbundinn til að leyfa gagnaðila að samnýta þá senda sem falla undir samninginn hið minnsta út árið 2028.

Markmið aðila með gerð samningsins er að auka hagkvæmni og skilvirkni við uppbyggingu og rekstur 5G þjónustu og innviða, draga úr umhverfisáhrifum slíkrar uppbyggingar og tryggja enn betur fjarskiptaöryggi og þjónustu við viðskiptavini.

Nánari upplýsingar veitir:

Heiðar Guðjónsson, forstjóri Sýnar hf., heidarg@syn.is