Kurs & Likviditet
Beskrivning
Land | Island |
---|---|
Lista | Small Cap Iceland |
Sektor | Telekom & Media |
Industri | Telekommunikation och -tjänster |
Í viku 4 keypti Sýn 1.076.224 eigin hluti að kaupverði 70.628.380 kr. eins og nánar er greint frá hér á eftir:
Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð (gengi) | Kaupverð (kr.) |
24.1.2022 | 13:03:25 | 200.000 | 67,00 | 13.400.000 |
25.1.2022 | 09:41:50 | 219.056 | 65,00 | 14.238.640 |
26.1.2022 | 09:37:20 | 219.056 | 66,00 | 14.457.696 |
27.1.2022 | 09:31:37 | 219.056 | 65,25 | 14.293.404 |
28.1.2022 | 09:31:39 | 219.056 | 65,00 | 14.238.640 |
Samtals | 1.076.224 | 70.628.380 | ||
Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem tilkynnt var um í Kauphöll þann 12. janúar 2022.
Sýn átti 21.950.000 eigin hluti fyrir viðskiptin og eiga að þeim loknum 23.026.224 eigin hluti eða sem nemur 7,77% af útgefnum hlutum í félaginu.
Sýn hefur keypt samtals 2.276.224 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 0,77% af útgefnum hlutum í félaginu og nemur heildarkaupverð þeirra 150.828.380 kr. Endurkaup samkvæmt áætluninni munu nema að hámarki 8.500.000 hlutum þannig að eigin hlutir nemi að hámarki 9,9% af útgefnum hlutum í félaginu. Heildarkaupverð má þó ekki vera hærra en 600.000.000 kr. Endurkaupaáætlunin er í gildi til og með 3. mars 2022, nema skilyrði um hámarkskaup verði uppfyllt fyrir þann tíma.
Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við VIII. kafla laga um hlutafélög nr. 2/1995, II. kafla viðauka við reglugerð nr. 630/2005 um innherjaupplýsingar og markaðssvik, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021.
Nánari upplýsingar veita:
fjárfestatengsl Sýnar í gegnum netfangið fjarfestatengsl@syn.is