Kurs & Likviditet
Beskrivning
Land | Island |
---|---|
Lista | Small Cap Iceland |
Sektor | Telekom & Media |
Industri | Telekommunikation och -tjänster |
Í viku 6 keypti Sýn 1.095.280 eigin hluti að kaupverði 68.400.236 kr. eins og nánar er greint frá hér á eftir:
Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð (gengi) | Kaupverð (kr.) |
7.2.2022 | 09:52:17 | 219.056 | 62,50 | 13.691.000 |
8.2.2022 | 09:37:14 | 219.056 | 62,75 | 13.745.764 |
9.2.2022 | 09:36:42 | 219.056 | 62,50 | 13.691.000 |
10.2.2022 | 09:33:21 | 219.056 | 62,50 | 13.691.000 |
11.2.2022 | 09:38:21 | 219.056 | 62,00 | 13.581.472 |
Samtals | 1.095.280 | 68.400.236 | ||
Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem tilkynnt var um í Kauphöll þann 12. janúar 2022.
Sýn átti 24.121.504 eigin hluti fyrir viðskiptin og eiga að þeim loknum 25.216.784 eigin hluti eða sem nemur 8,51% af útgefnum hlutum í félaginu.
Sýn hefur keypt samtals 4.466.784 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 1,51% af útgefnum hlutum í félaginu og nemur heildarkaupverð þeirra 288.833.660 kr. Endurkaup samkvæmt áætluninni munu nema að hámarki 8.500.000 hlutum þannig að eigin hlutir nemi að hámarki 9,9% af útgefnum hlutum í félaginu. Heildarkaupverð má þó ekki vera hærra en 600.000.000 kr. Endurkaupaáætlunin er í gildi til og með 3. mars 2022, nema skilyrði um hámarkskaup verði uppfyllt fyrir þann tíma.
Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við VIII. kafla laga um hlutafélög nr. 2/1995, II. kafla viðauka við reglugerð nr. 630/2005 um innherjaupplýsingar og markaðssvik, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021.
Nánari upplýsingar veita:
fjárfestatengsl Sýnar í gegnum netfangið fjarfestatengsl@syn.is