Beskrivning
Land | Island |
---|---|
Lista | Mid Cap Iceland |
Sektor | Finans |
Industri | Försäkring |
VÍS birtir uppgjör annars ársfjórðungs 2020 eftir lokun markaða þann 20. ágúst næstkomandi. Kynningarfundur fyrir markaðsaðila og fjárfesta vegna uppgjörsins verður haldinn daginn eftir, föstudaginn 21. ágúst, í húsnæði félagsins, Ármúla 3, klukkan 8:30.
Á fundinum mun Helgi Bjarnason, forstjóri félagsins, kynna uppgjörið og svara spurningum. Við biðjum þá sem hafa hug á að mæta á fundinn að senda tölvupóst á fjarfestatengsl@vis.is svo við getum haldið vel utan um fjölda þeirra sem ætla að mæta. Við virðum tveggja metra regluna í fundarsalnum því við viljum tryggja öryggi þeirra sem mæta á fundinn.
Hægt verður að fylgjast með fundinum í beinni útsendingu og nálgast upptöku að honum loknum á vefslóðinni: https://www.vis.is/vis/fjarfestar/fjarfestafundur/
Kynningarefni fundarins verður hægt að nálgast hér: https://www.vis.is/vis/fjarfestar/yfirlit-fjarfestaupplysinga/
Nánari upplýsingar veitir Erla Tryggvadóttir, samskiptastjóri VÍS, í síma 660-5260 og með netfanginu erlat@vis.is