Beskrivning
Land | Island |
---|---|
Lista | Mid Cap Iceland |
Sektor | Finans |
Industri | Försäkring |
VÍS birtir uppgjör þriðja ársfjórðungs 2020 eftir lokun markaða þann 22. október næstkomandi. Rafrænn kynningarfundur fyrir markaðsaðila og fjárfesta vegna uppgjörsins verður haldinn daginn eftir, föstudaginn 23. október, klukkan 8:30.
Á fundinum mun Helgi Bjarnason, forstjóri félagsins, kynna uppgjörið og svara spurningum.
Hægt verður að fylgjast með fundinum í beinni útsendingu og nálgast upptöku að honum loknum á vefslóðinni: https://www.vis.is/vis/fjarfestar/fjarfestafundur/
Kynningarefni fundarins verður hægt að nálgast hér: https://www.vis.is/fjarfestaupplysingar/
Þess má geta að ekki verður birt tilkynning um samsett hlutfall og ávöxtun fjáreigna fyrir september 2020, en farið verður yfir samsett hlutfall fjórðungsins á kynningarfundinum.
Nánari upplýsingar veitir Erla Tryggvadóttir, samskiptastjóri VÍS, í síma 660-5260 og með netfanginu erlat@vis.is