12:08:10 Europe / Stockholm

Prenumeration

2022-04-29 16:25:00

Tilkynning um afkomu A/F HEIM slhf. vegna skuldabréfaflokka HEIM070826, HEIM100646 og HEIM071248

Sérhæfði sjóðurinn A/F HEIM slhf., sem er í rekstri A/F Rekstraraðila ehf., hefur í dag samþykkt ársreikning sjóðsins. Vaxtatekjur námu 459 milljónum króna og vaxtagjöld 459 milljónum króna. Hreinar rekstrartekjur félagsins námu 7 milljónum króna á árinu 2021. Hagnaður félagsins á árinu 2021 var 7 þúsund krónur. (2020 var enginn rekstur).

Eignir félagsins námu 13,7 ma. kr. í árslok 2021 og skuldir félagsins námu á sama tíma 13,7 ma. kr. Eigið fé félagsins í árslok 2021 var 4,0 millj. kr. samkvæmt efnahagsreikningi (2020 var enginn rekstur). Vísað er að öðru leyti til ársreiknings félagsins um breytingar á eigin fé félagsins og ráðstöfun hagnaðar.

Sjóðurinn A/F HEIM slhf. var stofnaður árið 2021 og starfar samkvæmt lögum um rekstraraðila sérhæfðra sjóða. Sjóðurinn fjárfesti í skráðum skuldabréfum sem voru útgefin af Heimavöllum hf. gegn greiðslu með skráðum skuldabréfum útgefnum af sjóðnum, sem eru með veði í fasteignatryggðum seljendalánum til Heimstaden ehf. Skráðir skuldabréfaflokkar A/F HEIM slhf. eru þrír talsins, HEIM070826, HEIM100646 og HEIM071248.

Meðfylgjandi er ársreikningur ársins 2021.