14:20:29 Europe / Stockholm

Prenumeration

2023-04-28 17:40:00

Tilkynning um afkomu A/F HEIM slhf. vegna skuldabréfaflokka HEIM070826, HEIM100646 og HEIM071248

Sérhæfði sjóðurinn A/F HEIM slhf., sem er í rekstri A/F Rekstraraðila ehf., hefur í dag samþykkt ársreikning sjóðsins. Vaxtatekjur námu 1.632 milljónum króna (2021: 459 millj. króna) og vaxtagjöld 1.632 millj. króna (2021: 459 millj. króna). Hreinar rekstrartekjur félagsins námu 17,4 milljónum króna á árinu 2022 (2021: 7 millj. króna). Hagnaður félagsins á árinu 2022 var 154 þúsund krónur (2021: 7 þúsund krónur).

Eignir félagsins námu 14,6 ma. kr. í árslok 2022 og skuldir félagsins námu á sama tíma 14,6 ma. kr. Eigið fé félagsins í árslok 2022 var 4,2 millj. kr. samkvæmt efnahagsreikningi. Vísað er að öðru leyti til ársreiknings félagsins um breytingar á eigin fé félagsins og ráðstöfun hagnaðar.

Sjóðurinn A/F HEIM slhf. var stofnaður árið 2021 og starfar samkvæmt lögum um rekstraraðila sérhæfðra sjóða. Sjóðurinn fjárfesti í skráðum skuldabréfum sem voru útgefin af Heimavöllum hf. gegn greiðslu með skráðum skuldabréfum útgefnum af sjóðnum, sem eru með veði í fasteignatryggðum seljendalánum til Heimstaden ehf. Skráðir skuldabréfaflokkar A/F HEIM slhf. eru þrír talsins, HEIM070826, HEIM100646 og HEIM071248.

Meðfylgjandi er ársreikningur ársins 2022.