20:09:12 Europe / Stockholm

Prenumeration

2024-04-19 16:22:00

Tilkynning um afkomu A/F HEIM slhf. vegna skuldabréfaflokka HEIM070826, HEIM100646 og HEIM071248

Sérhæfði sjóðurinn A/F HEIM slhf., sem er í rekstri A/F Rekstraraðila ehf., hefur í dag samþykkt ársreikning sjóðsins. Vaxtatekjur námu 1.537 milljónum króna (2022: 1.632 milljónum króna) og vaxtagjöld 1.537 milljónum króna (2022: 1.632 milljónum króna). Hreinar rekstrartekjur félagsins námu 18,8 milljónum króna á árinu 2023 (2022: 17,4 milljónum króna). Hagnaður félagsins á árinu 2023 var 549 þúsund krónur (2022: 154 þúsund krónur).

Eignir félagsins námu 15,3 ma. kr. í árslok 2023 og skuldir félagsins námu á sama tíma 15,3 ma. kr. Eigið fé félagsins í árslok 2023 var 4,6 millj. kr. samkvæmt efnahagsreikningi. Vísað er að öðru leyti til ársreiknings félagsins um breytingar á eigin fé félagsins og ráðstöfun hagnaðar.

Sjóðurinn A/F HEIM slhf. var stofnaður árið 2021 og starfar samkvæmt lögum um rekstraraðila sérhæfðra sjóða. Sjóðurinn fjárfesti í skráðum skuldabréfum sem voru útgefin af Heimavöllum hf. gegn greiðslu með skráðum skuldabréfum útgefnum af sjóðnum, sem eru með veði í fasteignatryggðum seljendalánum til Heimstaden ehf. Skráðir skuldabréfaflokkar A/F HEIM slhf. eru þrír talsins, HEIM070826, HEIM100646 og HEIM071248.

Meðfylgjandi er ársreikningur ársins 2023.