10:56:43 Europe / Stockholm

Prenumeration

2023-02-01 16:46:00

Skýrsla staðfestingaraðila vegna skuldabréfaflokkanna HEIM070826, HEIM100646 og HEIM071248

PricewaterhouseCoopers (Pwc) hefur skilað staðfestingum á skýrslu Heimstaden ehf. vegna skuldabréfaflokkanna HEIM070826, HEIM100646 og HEIM071248 útgefnum af A/F HEIM slhf.

PwC hefur farið yfir skýrslu varðandi fjárhagslegar og sérstakar kvaðir, verðmat sem liggur til grundvallar og aðrar upplýsingar miðað við dagsetninguna 31.12.2022. Vísað er til skýrslu útgefanda um fjárhagslegar- og sérstakar kvaðir, dags. 17. janúar 2023.

  • PwC staðfestir að skuldabréfaflokkurinn HEIM100646 stenst öll skilyrði.
  • PwC staðfestir að skuldabréfaflokkurinn HEIM071248 stenst öll skilyrði, að undanskildu vægi um staðsetningu eigna.1)
  • PwC staðfestir að skuldabréfaflokkurinn HEIM070826 stenst öll skilyrði, að undanskildu vægi um staðsetningu eigna.1)

1) Virði veðsettra eigna utan höfuðborgarsvæðis eru 40,1% af heildarvirði veðsetts eignasafns. Það er yfir þeim mörkum sem eru tilgreind í fjárhagslegum- og sérstökum kvöðum tryggingafyrirkomulagsins og stenst skilyrði því ekki. Við samanburð á öðrum kvöðum kom í ljós að lánaþekja og vaxtaþekja eru það ríflega yfir viðeigandi mörkum að útgefandi gæti tekið veðsettar eignir utan höfuðborgarsvæðisins út úr veðandlaginu uppfyllt þannig skilyrði um staðsetningu eigna, vaxtaþekju og lánaþekju. Ekki er því hægt að segja að skuldabréfaeigendur séu verr settir þó svo skilyrði um staðsetningu eigna sé ekki uppfyllt.
Yfirferð staðfestingaraðila á fjárhagslegum- og sérstökum kvöðum samræmist mati útgefanda og skýrsla um fjárhagslegar og sérstakar kvaðir er staðfest miðað við dagsetninguna 31. desember 2022.

Niðurstöður kannana má sjá í meðfylgjandi viðhengjum.