09:07:12 Europe / Stockholm

Prenumeration

2023-09-22 16:50:00

Skýrsla staðfestingaraðila vegna skuldabréfaflokkanna HEIM070826, HEIM100646 og HEIM071248

PricewaterhouseCoopers (Pwc) hefur skilað staðfestingum á skýrslu Heimstaden ehf. vegna skuldabréfaflokkanna HEIM070826, HEIM100646 og HEIM071248 útgefnum af A/F HEIM slhf.

PwC hefur farið yfir skýrslu varðandi fjárhagslegar og sérstakar kvaðir, verðmat sem liggur til grundvallar og aðrar upplýsingar miðað við dagsetninguna 30.6.2023. Vísað er til skýrslu útgefanda um fjárhagslegar- og sérstakar kvaðir, dags. 22. september 2023.

  • PwC staðfestir að skuldabréfaflokkurinn HEIM100646 stenst öll skilyrði.
  • PwC staðfestir að skuldabréfaflokkurinn HEIM071248 stenst öll skilyrði.
  • PwC staðfestir að skuldabréfaflokkurinn HEIM070826 stenst öll skilyrði.

Yfirferð staðfestingaraðila á fjárhagslegum- og sérstökum kvöðum samræmist mati útgefanda og skýrsla um fjárhagslegar og sérstakar kvaðir er staðfest miðað við dagsetninguna 30. júní 2023.

Niðurstöður kannana má sjá í meðfylgjandi viðhengjum.