13:50:48 Europe / Stockholm

Prenumeration

2023-08-31 13:20:00

Tilkynning um afkomu A/F HEIM slhf. vegna skuldabréfaflokka HEIM070826, HEIM100646 og HEIM071248

Stjórn A/F HEIM slhf., sem er sérhæfður sjóður í rekstri A/F Rekstraraðila hf., hefur í dag samþykkt árshlutareikning sjóðsins m.v. 30. júní 2023. Vaxtatekjur námu 958 milljónum króna (2022: 882 millj. kr.) og vaxtagjöld 958 milljónum króna (2022: 882 millj. kr.). Hreinar rekstrartekjur félagsins námu 9 milljónum króna á fyrstu sex mánuðum ársins 2023 (2022: 8 millj. kr.). Hagnaður félagsins á tímabilinu nam 162 þúsund krónum (2022: 0 kr).

Eignir félagsins námu 15,1 ma. kr. þann 30. júní 2023 og skuldir félagsins námu á sama tíma 15,1 ma. kr. Eigið fé félagsins í lok júní 2023 var 4,3 millj. kr. samkvæmt efnahagsreikningi. Vísað er að öðru leyti til árshlutareiknings félagsins um breytingar á eigin fé félagsins og ráðstöfun hagnaðar.

Sjóðurinn A/F HEIM slhf. hóf rekstur í júlí árið 2021 og starfar samkvæmt lögum um rekstraraðila sérhæfðra sjóða. Sjóðurinn fjárfesti þá í skráðum skuldabréfum sem voru útgefin af Heimavöllum hf. gegn greiðslu með skráðum skuldabréfum útgefnum af sjóðnum, sem eru með veði í fasteignatryggðum seljendalánum til Heimstaden ehf. Skráðir skuldabréfaflokkar A/F HEIM slhf. eru þrír talsins, HEIM070826, HEIM100646 og HEIM071248.

Meðfylgjandi er árshlutareikningur m.v. 30. júní 2023.