12:55:49 Europe / Stockholm

Prenumeration

2023-06-27 15:55:00

Aðalfundur A/F HEIM slhf. árið 2023

Þann 27. júní 2023 var haldinn aðalfundur A/F HEIM slhf. að Katrínartúni 2, 105 Reykjavík.

  1. Á fundinum var ársreikningur félagsins fyrir árið 2022 samþykktur.
  2. Samþykkt var að ráðstafa hagnaði til hækkunar á eigin fé. Samkvæmt reglum félagsins er ekki heimilt að greiða arð nema eigendur skuldabréfa sem félagið hefur gefið út, sem eiga samanlagt a.m.k. 90% af kröfum skuldabréfanna, hafi samþykkt slíkt.
  3. Samþykkt var að Deloitte ehf. verði áfram endurskoðunarfélag félagsins og fyrir þess hönd Gunnar Þorvarðarson, löggiltur endurskoðandi.
  4. Samþykkt var að þóknun endurskoðanda yrði samkvæmt samþykktum reikningum.
  5. Samkvæmt 1. mgr. 4. gr. samþykkta félagsins, gegnir ábyrgðarðili hlutverki stjórnar félagsins. Ábyrgðaraðili A/F HEIM slhf. er Viti fjárfestingafélag ehf. Samþykkt var að stjórn félagsins yrði óbreytt.