05:54:44 Europe / Stockholm

Beskrivning

LandIsland
ListaFirst North Iceland
SektorTjänster
IndustriFordon & Transport
Fly Play bedriver flygverksamhet. Bolaget erbjuder ett brett utbud av resmål runt om världens kontinenter. Störst verksamhet återfinns inom Island och Europa. Visionen är att vara en långsiktig och hållbar aktör på flygmarknaden genom att erbjuda ett brett utbud av resor. Kunderna består av både privata aktörer samt små- och medelstora företagskunder.
2024-04-14 22:15:00

Flugfélagið PLAY hefur ráðið Sigurð Örn Ágústsson sem framkvæmdastjóra viðskiptaþróunar. Um er að ræða nýtt svið innan flugfélagsins en Sigurður Örn mun hafa það hlutverk að leiða frekari þróun þvert á öll svið flugfélagsins.  

 
Sigurður Örn er með BA-gráðu í kennslufræðum frá Kennaraháskóla Íslands og MBA-gráðu frá Katz Graduate School of Business (University of Pittsburgh).
 
Hann á að baki langan feril í flugrekstri en hann var áður forstjóri og stjórnarformaður Bláfugls ásamt því að sitja í stjórn Avion Express. Hann átti einnig stóran þátt í samningaviðræðum og undirbúningi nokkurra stórra fyrirtækjakaupa fyrir Avia Solutions Group (ASG), þar með talið Avion Express, SmartLynx og Bláfugl.
 
„Það er virkilega spennandi að ganga til liðs við PLAY á þessum tíma. Félagið hefur vaxið hressilega síðustu ár, þar á meðal tvöfaldaði það tekjur sínar í fyrra og hefur á sama tíma náð að halda kostnaðargrunni sínum samkeppnishæfum. PLAY er því vel í stakk búið til að ná enn lengra á komandi misserum og árum og ég finn að eigendur og starfsfólk hafa mikinn metnað til þess. Ég hlakka virkilega til að taka þátt í því verkefni,” segir Sigurður Örn Ágústsson.  
 
„Það er mikill happafengur að hafa fengið Sigurð Örn til liðs við okkur. Með honum fylgir dýrmæt þekking og reynsla úr flugbransanum sem ég er ekki í vafa um að eigi eftir að nýtast okkur vel. Við ætlum okkur stóra hluti og þessi nýi liðsstyrkur mun vafalaust hjálpa okkur á þeirri vegferð,” segir Einar Örn Ólafsson, forstjóri PLAY.