09:15:45 Europe / Stockholm

Kurs & Likviditet

Kursutveckling och likviditet under dagen för detta pressmeddelande

Prenumeration

Kalender

2024-10-30 Kvartalsrapport 2024-Q3
2024-07-25 Kvartalsrapport 2024-Q2
2024-04-30 Kvartalsrapport 2024-Q1
2024-03-14 Ordinarie utdelning ARION 9.00 ISK
2024-03-14 Ordinarie utdelning ARION SDB 0.69 ISK
2024-03-13 Årsstämma 2024
2024-02-07 Bokslutskommuniké 2023
2023-10-26 Kvartalsrapport 2023-Q3
2023-07-26 Kvartalsrapport 2023-Q2
2023-05-04 Kvartalsrapport 2023-Q1
2023-03-16 Ordinarie utdelning ARION 8.50 ISK
2023-03-16 Ordinarie utdelning ARION SDB 0.63 ISK
2023-03-15 Årsstämma 2023
2023-02-08 Bokslutskommuniké 2022
2022-10-26 Kvartalsrapport 2022-Q3
2022-07-27 Kvartalsrapport 2022-Q2
2022-05-04 Kvartalsrapport 2022-Q1
2022-03-17 Ordinarie utdelning ARION SDB 1.09 ISK
2022-03-17 Ordinarie utdelning ARION 15.00 ISK
2022-03-16 Årsstämma 2022
2022-02-09 Bokslutskommuniké 2021
2021-10-27 Kvartalsrapport 2021-Q3
2021-07-28 Kvartalsrapport 2021-Q2
2021-05-05 Kvartalsrapport 2021-Q1
2021-03-17 Ordinarie utdelning ARION SDB 0.12 ISK
2021-03-17 Ordinarie utdelning ARION 1.74 ISK
2021-03-16 Årsstämma 2021
2021-02-10 Bokslutskommuniké 2020
2020-10-28 Kvartalsrapport 2020-Q3
2020-07-29 Kvartalsrapport 2020-Q2
2020-05-15 Ordinarie utdelning ARION SDB 0.00 ISK
2020-05-15 Ordinarie utdelning ARION 0.00 ISK
2020-05-14 Årsstämma 2020
2020-05-06 Kvartalsrapport 2020-Q1
2020-02-12 Bokslutskommuniké 2019
2019-10-30 Kvartalsrapport 2019-Q3
2019-08-09 Årsstämma 2019
2019-08-08 Kvartalsrapport 2019-Q2
2019-05-08 Kvartalsrapport 2019-Q1
2019-03-21 Ordinarie utdelning ARION 5.00 ISK
2019-03-21 Ordinarie utdelning ARION SDB 0.39 ISK
2019-02-13 Bokslutskommuniké 2018
2018-10-31 Kvartalsrapport 2018-Q3
2018-08-01 Kvartalsrapport 2018-Q2

Beskrivning

LandIsland
ListaLarge Cap Stockholm
SektorFinans
IndustriBank
Arion Bank bedriver bankverksamhet. Banken erbjuder finansiella tjänster inriktade mot lån, sparande och pension. Olika tjänster inkluderart traditionell kapitalförvaltning, lånefinansiering, samt fakturerings – och valutatjänster. En stor del av tjänsterna nås via internetbanken, där kunderna återfinns både bland privat- och företagskunder på den isländska marknaden. Huvudkontoret ligger i Reykjavik.
2021-10-27 17:50:00
  • Hagnaður Arion banka á 3F 2021 var 8.238 milljónir króna
  • Arðsemi eiginfjár á fjórðungnum var 17,0% samanborið við 8,3% á 3F 2020
  • Hreinn vaxtamunur var 2,7% í lágu vaxtaumhverfi, samanborið við 2,9% á 3F 2020
  • Besti fjórðungur hvað hreinar þóknanatekjur varðar frá árinu 2016, um 36% aukning frá 3F 2020
  • Tekjur af kjarnastarfsemi jukust um 7,5% samanborið við 3F 2020
  • Kostnaðarhlutfallið á fjórðungnum var 37,5%, samanborið við 40,2% á 3F 2020
  • Heildareignir bankans jukust um 14,8% frá áramótum
  • Arðgreiðsla og endurkaup á hlutabréfum bankans námu 25,5 milljörðum króna á fyrstu níu mánuðunum
  • Bankinn mun hefja endurkaup á eigin bréfum fyrir um 5 milljarða króna þann 28. október, sem nemur helmingi þeirrar heimildar sem Fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands hefur veitt bankanum til endurkaupa
  • Eiginfjárhlutfall bankans var 25,4% og hlutfall almenns eiginfjárþáttar 1 var 20,9% þann 30. september 2021
  • Arion banki gaf út sértryggð skuldabréf að upphæð 300 milljónir evra í september en um var að ræða fyrstu sértryggðu skuldabréfaútgáfu íslensks banka í evrum
  • Arion banki er í mjög góðri stöðu til að lækka eigið fé með útgreiðslum og mæta eftirspurn viðskiptavina eftir lánsfé
  • Samtvinnun banka- og tryggingastarfsemi verður í lykilhlutverki næstu mánuðina þegar Vörður flytur í höfuðstöðvar Arion banka og samstarf félagsins og viðskiptabankasviðs verður styrkt enn frekar
  • Þann 1. júlí 2021 náðust samningar um sölu Arion banka á Valitor hf.

Hagnaður Arion banka nam 8.238 milljónum króna á þriðja ársfjórðungi. Arðsemi eiginfjár var 17,0% á fjórðungnum. Arðsemi eiginfjár miðað við 17% hlutfall almenns eiginfjárþáttar 1 var 21,8% á fjórðungnum.

Heildareignir námu 1.346 milljörðum króna í lok september, samanborið við 1.173 milljarða króna í árslok 2020. Lán til viðskiptavina jukust um 9,0% frá áramótum en íbúðalán hækkuðu um 16,4% á sama tíma. Lausafé jókst um 15,3% þrátt fyrir endurkaup á hlutabréfum bankans og arðgreiðslu. Á skuldahliðinni jukust innlán um 12,8% fyrstu níu mánuði ársins og lántaka jókst um 32,8%, mest á þriðja ársfjórðungi þegar bankinn gaf út græn skuldabréf og sértryggð skuldabréf í evrum. Heildar eigið fé nam 195 milljörðum króna í lok tímabilsins og kom afkoma tímabilsins til hækkunar en til lækkunar komu arðgreiðslur og endurkaup á hlutabréfum bankans.

Eiginfjárhlutfall bankans (CAR hlutfall) var 25,4% í lok júní og hlutfall almenns eiginfjárþáttar 1 var 20,9% að teknu tilliti til væntrar arðgreiðslu, sem nemur 50% af hagnaði í samræmi við arðgreiðslustefnu bankans, og fyrirhugaðra endurkaupa eigin bréfa að fjárhæð 10 milljarða króna, samanborið við 27,0% og 22,3% um áramót. Eiginfjárhlutfall samkvæmt reglum Fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands var 24,8% í lok september og hlutfall eiginfjárþáttar 1 20,3%. Eiginfjárhlutfall og hlutfall almenns eiginfjárþáttar 1 eru vel umfram kröfur sem settar eru fram í lögum og af Fjármálaeftirliti Seðlabanka Íslands.

Benedikt Gíslason, bankastjóri Arion banka
„Starfsemi Arion banka gekk vel á þriðja ársfjórðungi eins og hún hefur raunar gert allt þetta ár. Allir helstu fjárhagsmælikvarðar bankans þróast með jákvæðum hætti á tímabilinu og tekjur af kjarnastarfsemi aukast um 7,5% frá sama tímabili fyrir ári. Þóknanatekjur bankans halda áfram að aukast og bera fjölbreyttri starfsemi bankans vott. Í takt við jákvæða þróun í efnahagslífi landsins aukast útlán Arion banka um 6% á fjórðungnum. Eiginfjár- og lausafjárhlutföll bankans eru áfram sterk og með því hæsta sem gerist í Evrópu.

Á ársfjórðungnum var sett á laggirnar nýtt svið innan bankans, upplifun viðskiptavina, og fjölgaði þar með um einn í framkvæmdastjórn. Stofnun sviðsins er liður í því að efla heildstæðar sölu- og þjónustuleiðir okkar með sérstaka áherslu á stafræna þjónustu. Þannig gegnir nýja sviðið mikilvægu hlutverki þegar kemur að auknu samstarfi Arion banka og tryggingafélagsins Varðar, dótturfélags bankans, og mótun heildstæðrar fjármálaþjónustu sem er aðgengileg í gegnum fjölbreyttar og nútímalegar þjónustuleiðir. Unnið er að því þessar vikurnar að flytja starfsemi og þjónustu Varðar í höfuðstöðvar bankans í Borgartúni. Hluti núverandi starfsmanna Varðar mun koma til starfa hjá bankanum á meðan aðrir munu starfa áfram hjá Verði sem verður áfram sjálfstætt félag.

Arion banki gaf nýverið út sértryggð skuldabréf í evrum sem er nýjung í fjármögnun bankans og opnar aðgengi að nýjum hópi fjárfesta. Útgáfunni var afar vel tekið og vakti þó nokkra eftirtekt á alþjóðlegum lánsfjármörkuðum. Kjörin voru þau hagstæðustu sem íslenskur útgefandi, að íslenska ríkinu meðtöldu, hefur fengið á alþjóðlegum lánsfjármörkuðum á síðustu 13 árum og er mikilvæg viðbót við fjármögnunarkosti bankans til framtíðar.

Jafnréttismál skipta okkur miklu og því höfum við á undanförnum árum lagt höfuðáherslu á að einstaklingar fái greidd jöfn laun fyrir jafn verðmæt störf. Bankinn hlaut fyrst jafnlaunavottun VR fyrir sex árum og jafnlaunamerki velferðarráðuneytisins fyrir þremur árum. Við síðustu jafnlaunaúttekt var óútskýrður launamunur innan bankans fyrir jafnverðmæt störf kominn niður í 0,1%. Það er hins vegar þekkt að meðallaun karla, bæði í Arion banka og samfélaginu öllu, eru hærri en meðallaun kvenna og að feður nýta að jafnaði síður fæðingarorlofsrétt sinn en mæður. Við ákváðum nýverið að greiða starfsfólki allt að 80% launa í fæðingarorlofi í sex mánuði. Aðgerðin miðar að því að því að fjölga þeim feðrum í starfsmannahópi bankans sem nýta fæðingarorlofsrétt sinn og vonumst við jafnframt til þess að til lengri tíma litið verði hún verið liður í að jafna annars vegar meðallaun kynjanna og hins vegar hlut kynjanna í hópi stjórnenda og í ólíkum starfaflokkum.“

Fundur / vefstreymi fyrir markaðsaðila 28. október klukkan 8:30
Fundur / vefstreymi fyrir markaðsaðila fer fram fimmtudaginn 28. október klukkan 8:30 í Borgartúni 19 þar sem Benedikt Gíslason bankastjóri Arion banka og Ólafur Hrafn Höskuldsson framkvæmdastjóri fjármálasviðs munu kynna afkomu bankans og svara spurningum þátttakenda. Fundurinn fer fram á ensku.

Hægt verður að nálgast streymið beint á financialhearings.com og á fjárfestatengslavef bankans.

Til að taka þátt í vefstreyminu með því að leggja fram spurningar þarf að hringja inn áður en kynningin hefst, sjá eftirfarandi símanúmer:

Ísland800 7437 (PIN 34271325#)
Svíþjóð+46 856 642 703
Bretland+44 333 300 9034
Bandaríkin+1 646 722 4902

Fjárhagsdagatal Arion banka er aðgengilegt á heimasíðu bankans.