Bifogade filer
Prenumeration
Du har en aktiv prenumeration.
Prenumerera på pressmeddelanden från Arion Bank via email.
Du prenumererar på följande språk.
Välj vilka språk du vill prenumerera på.
Modular Finance AB kommer att hantera vissa av dina personuppgifter om du väljer att prenumerera. Mer information om vår personuppgiftshantering finns här.
Beskrivning
| Land | Island |
|---|---|
| Lista | Large Cap Iceland |
| Sektor | Finans |
| Industri | Bank |
Intresserad av bolagets nyckeltal?
Analysera bolaget i Börsdata!
Vem äger bolaget?
All ägardata du vill ha finns i Holdings!
2026-03-11 18:20:00
Aðalfundur Arion banka hf. var haldinn þann 11. mars 2026 kl. 16:00.
Eftirfarandi eru niðurstöður fundarins:
- Skýrsla stjórnar um starfsemi bankans á síðasta reikningsári var kynnt af Paul Horner, stjórnarformanni. Jafnframt fór Benedikt Gíslason, bankastjóri, yfir starfsemi bankans síðastliðið ár.
- Ársreikningur bankans og samstæðureikningur fyrir síðastliðið reikningsár var samþykktur.
- Samþykkt var að greiða út arð.
Samþykkt var að greiða út arð til hluthafa bankans sem nemur 11,5 kr. á hlut, sem jafngildir um 15,3 milljörðum kr. Arðleysisdagur (e. ex-date), þ.e. sá dagur sem viðskipti hefjast með bréf bankans án réttar til arðs, verður 12. mars 2026. Arðsréttindadagur (e. record date) verður 13. mars 2026. Hluthafar tilgreindir í hlutaskrá bankans í lok arðsréttindadags eiga tilkall til arðs. Útborgunardagur (e. payment date) verður 19. mars 2026. - Kosning stjórnar bankans, stjórnarformanns og varaformanns stjórnar.
Paul Horner var endurkjörinn formaður stjórnar og Kristín Pétursdóttir endurkjörin varaformaður.
Eftirtaldir aðilar voru sjálfkjörnir í stjórn bankans:
- Gunnar Sturluson
- Kristín Pétursdóttir (varaformaður)
- Paul Horner (formaður)
- Steinunn Kristín Þórðardóttir
- Tómas Már Sigurðsson
og eftirtaldir aðilar voru sjálfkjörnir í varastjórn bankans: - Einar Hugi Bjarnason
- Sigurbjörg Ólafsdóttir
- Samþykkt var að Deloitte ehf. haldi áfram hlutverki sínu sem ytri endurskoðendur bankans.
Deloitte ehf. var kjörið til að halda áfram hlutverki sínu sem ytri endurskoðandi bankans fram að næsta aðalfundi. Byggir sú tillaga á samningi milli Arion banka og Deloitte ehf. frá desember 2024 og 90. gr. laga nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki. - Samþykkt var tillaga stjórnar um þóknun til stjórnarmanna bankans og laun nefndarmanna í undirnefndum stjórnar.
Tillaga stjórnar um þóknun til stjórnarmanna bankans og laun nefndarmanna í undirnefndum stjórnar var samþykkt eins og hún var lögð fram á fundinum. - Ákvörðun um þóknun til nefndarmanna í tilnefningarnefnd bankans var samþykkt.
Samþykkt var að þóknun til nefndarmanna í tilnefningarnefnd yrði fast tímagjald sem nemur 31.000 kr. - Kosning tveggja nefndarmanna í tilnefningarnefnd bankans.
Fyrir fundinn bárust framboð í tilnefningarnefnd bankans frá Auði Bjarnadóttur og Júlíusi Þorfinnssyni og voru þau því sjálfkjörin til setu í tilnefningarnefnd. - Kosning eins nefndarmanns í endurskoðunarnefnd bankans.
Heimir Þorsteinsson var endurkjörinn í endurskoðunarnefnd bankans. - Tillaga að breytingum á starfskjarastefnu bankans var samþykkt.
Starfskjarastefna bankans var samþykkt eins og hún var lögð fram á fundinum. - Tillaga um lækkun hlutafjár til jöfnunar á eigin hlutum og samsvarandi breyting á samþykktum.
Samþykkt var að lækka hlutafé bankans um 40.000.000 kr. að nafnverði, eða sem nemur 40.000.000 hlutum, til jöfnunar eigin hluta, úr 1.420.000.000 kr. í 1.380.000.000 kr. að nafnverði. Lækkunin verður framkvæmd með niðurfellingu eigin hluta bankans að framangreindri fjárhæð, að uppfylltum skilyrðum laga. - Tillaga um endurnýjun á heimild bankans til kaupa á eigin hlutum og samsvarandi breyting á samþykktum var samþykkt.
Aðalfundur Arion banka hf. haldinn 11. mars 2026 samþykkir að veita stjórn bankans heimild, á grundvelli 55. gr. laga um hlutafélög, nr. 2/1995, til að kaupa fyrir hönd bankans eigin hluti, þannig að félagið og dótturfélög eigi samanlagt allt að 10% af hlutafé bankans. Heimild þessi skal nýtt í þeim tilgangi að setja upp formlega endurkaupaáætlun eða til að gera hluthöfum almennt tilboð um kaup bankans á eigin bréfum, t.d. með útboðsfyrirkomulagi, enda sé jafnræðis hluthafa gætt við boð um þátttöku í slíkum viðskiptum. Hlutabréf sem bankinn eignast á grundvelli heimildar þessarar má m.a. nota í þeim tilgangi að uppfylla skuldbindingar félagsins samkvæmt kaupréttarsamningum, sem gerðir eru á milli félagsins og starfsfólks þess, sem og til greiðslu kaupauka, í samræmi við starfskjarastefnu og kaupaukakerfi bankans. Framkvæmd endurkaupa á grundvelli heimildar þessarar er háð því skilyrði að fyrir fram samþykki Fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands, samkvæmt 77. gr. reglugerðar ESB nr. 575/2013 um varfærniskröfur að því er varðar lánastofnanir og verðbréfafyrirtæki, hafi verið veitt.
Heimild þessi gildir fram að aðalfundi bankans árið 2027 en hafi hann ekki farið fram 11. september 2027 rennur hún út í síðasta lagi þann dag. Aðrar eldri heimildir til kaupa á eigin hlutum falla úr gildi við samþykkt heimildar þessarar. Slík afturköllun skal þó ekki hafa áhrif á endurkaupaviðskipti sem eru þegar hafin, eða þegar hefur verið stofnað til, fyrir þann dag. - Önnur mál.