Arion banki birtir uppgjör annars ársfjórðungs 2026 miðvikudaginn 29. júlí. Fjárfestafundur verður haldinn fimmtudaginn 30. júlí
Arion banki birtir uppgjör annars ársfjórðungs 2026 miðvikudaginn 29. júlí, eftir lokun markaða.
Fundur / vefstreymi fyrir markaðsaðila 30. júlí kl. 8:30
Fjárfestafundur fyrir markaðsaðila verður fimmtudaginn 30. júlí klukkan 8:30 í Borgartúni 19 þar sem Iða Brá Benediktsdóttir aðstoðarbankastjóri og Ólafur Hrafn Höskuldsson framkvæmdastjóri fjármálasviðs munu kynna afkomu bankans og fara yfir stöðu efnahagslífsins. Fundurinn fer fram á ensku og verður einnig streymt beint.
Hægt verður að nálgast streymið á Lumiconnect og á fjárfestatengslavef bankans. Þátttakendur sem fylgjast með rafrænt geta spurt spurninga á meðan á fundi stendur í gegnum spjallþráð á sömu síðu. Spurningum verður svarað að loknum kynningum.