Arion banki birtir uppgjör þriðja ársfjórðungs 2026 miðvikudaginn 28. október. Fjárfestafundur verður haldinn fimmtudaginn 29. október.
Arion banki birtir uppgjör þriðja ársfjórðungs 2026 miðvikudaginn 28. október, eftir lokun markaða.
Fundur/ vefstreymi fyrir markaðsaðila 29. október kl. 8:30
Fjárfestafundur fyrir markaðsaðila verður fimmtudaginn 29. október klukkan 8:30 í Borgartúni 19 þar sem Benedikt Gíslason bankastjóri Arion banka og Ólafur Hrafn Höskuldsson framkvæmdastjóri fjármálasviðs munu kynna afkomu bankans og Erna Björg Sverrisdóttir aðalhagfræðingur Arion banka mun fara yfir stöðu efnahagslífsins. Fundurinn fer fram á ensku og verður einnig streymt beint.
Hægt verður að nálgast streymið á Lumiconnect og á fjárfestatengslavef bankans. Þátttakendur sem fylgjast með rafrænt geta spurt spurninga á meðan á fundi stendur í gegnum spjallþráð á sömu síðu.
Spurningum verður svarað að loknum kynningum.