Prenumeration
Beskrivning
| Land | Island |
|---|---|
| Lista | Large Cap Iceland |
| Sektor | Finans |
| Industri | Bank |
Intresserad av bolagets nyckeltal?
Analysera bolaget i Börsdata!
Vem äger bolaget?
All ägardata du vill ha finns i Holdings!
Forviðræðum Kviku banka og Arion banka við Samkeppniseftirlitið vegna samrunaáforma félaganna er lokið. Í dag funduðu fulltrúar Kviku banka og Arion banka með fulltrúum Samkeppniseftirlitsins sem kynntu afstöðu sína að loknum forviðræðum.
Í ljósi þeirrar afstöðu Samkeppniseftirlitsins sem fram kom á fundinum telja stjórnir Kviku banka og Arion banka að ekki geti orðið af samruna félaganna. Stjórnir bankanna hafa því fallið frá samrunaáformum sem upplýst var um í tilkynningu til kauphallar þann 6. júlí 2025.
Benedikt Gíslason, bankastjóri Arion banka:
„Samrunaviðræður Arion banka og Kviku banka gengu vel og sáu báðir aðilar mikil tækifæri til að auka skilvirkni í íslensku fjármálakerfi viðskiptavinum og hluthöfum til góðs. Vil ég þakka Kviku banka ánægjulegt samstarf síðustu mánuði.
Mikil og vönduð vinna var lögð í forviðræður við Samkeppniseftirlitið og lögðu félögin fram margvíslegar lausnir til að stuðla að virkri og öflugri samkeppni á fjármálamarkaði. Afstaða Samkeppniseftirlitsins til samruna félaganna kemur því nokkuð á óvart og eru vonbrigði.
Arion banki hefur á undanförnum árum verið í forystu á íslenskum fjármálamarkaði með fjölbreyttri og snjallri fjármálaþjónustu. Við munum óhikað halda áfram á þeirri braut og þróa og efla þjónustu okkar með þarfir viðskiptavina að leiðarljósi.“