Lördag 15 Februari | 17:19:51 Europe / Stockholm

Prenumeration

Kalender

Tid*
2025-10-29 17:20 Kvartalsrapport 2025-Q3
2025-07-30 17:20 Kvartalsrapport 2025-Q2
2025-05-07 17:20 Kvartalsrapport 2025-Q1
2025-03-13 N/A X-dag ordinarie utdelning ARION 11.50 ISK
2025-03-12 N/A Årsstämma
2025-02-12 - Bokslutskommuniké 2024
2024-10-30 - Kvartalsrapport 2024-Q3
2024-07-25 - Kvartalsrapport 2024-Q2
2024-04-30 - Kvartalsrapport 2024-Q1
2024-03-14 - X-dag ordinarie utdelning ARION 9.00 ISK
2024-03-13 - Årsstämma
2024-02-07 - Bokslutskommuniké 2023
2023-10-26 - Kvartalsrapport 2023-Q3
2023-07-26 - Kvartalsrapport 2023-Q2
2023-05-04 - Kvartalsrapport 2023-Q1
2023-03-16 - X-dag ordinarie utdelning ARION 8.50 ISK
2023-03-15 - Årsstämma
2023-02-08 - Bokslutskommuniké 2022
2022-10-26 - Kvartalsrapport 2022-Q3
2022-07-27 - Kvartalsrapport 2022-Q2
2022-05-04 - Kvartalsrapport 2022-Q1
2022-03-17 - X-dag ordinarie utdelning ARION 15.00 ISK
2022-03-16 - Årsstämma
2022-02-09 - Bokslutskommuniké 2021
2021-10-27 - Kvartalsrapport 2021-Q3
2021-07-28 - Kvartalsrapport 2021-Q2
2021-05-05 - Kvartalsrapport 2021-Q1
2021-03-17 - X-dag ordinarie utdelning ARION 1.74 ISK
2021-03-16 - Årsstämma
2021-02-10 - Bokslutskommuniké 2020
2020-10-28 - Kvartalsrapport 2020-Q3
2020-07-29 - Kvartalsrapport 2020-Q2
2020-05-15 - X-dag ordinarie utdelning ARION 0.00 ISK
2020-05-14 - Årsstämma
2020-05-06 - Kvartalsrapport 2020-Q1
2020-02-12 - Bokslutskommuniké 2019
2019-10-30 - Kvartalsrapport 2019-Q3
2019-08-09 - Årsstämma
2019-08-08 - Kvartalsrapport 2019-Q2
2019-05-08 - Kvartalsrapport 2019-Q1
2019-03-21 - X-dag ordinarie utdelning ARION 5.00 ISK
2019-02-13 - Bokslutskommuniké 2018
2018-10-31 - Kvartalsrapport 2018-Q3
2018-08-01 - Kvartalsrapport 2018-Q2

Beskrivning

LandIsland
ListaLarge Cap Stockholm
SektorFinans
IndustriBank
Arion Bank bedriver bankverksamhet. Banken erbjuder finansiella tjänster inriktade mot lån, sparande och pension. Olika tjänster inkluderart traditionell kapitalförvaltning, lånefinansiering, samt fakturerings – och valutatjänster. En stor del av tjänsterna nås via internetbanken, där kunderna återfinns både bland privat- och företagskunder på den isländska marknaden. Huvudkontoret ligger i Reykjavik.
2025-02-14 17:40:00

Stjórn Arion banka ákvað á fundi sínum í dag að lýsa yfir áhuga á að hefja viðræður við stjórn Íslandsbanka um samruna félaganna. Bréf þess efnis hefur verið sent til stjórnarformanns og bankastjóra Íslandsbanka.

Arion banki sér mikil tækifæri í samruna bankanna fyrir viðskiptavini, hluthafa og íslenskt hagkerfi. Það er staðreynd að þrátt fyrir fjölmargar hagræðingaraðgerðir íslenskra banka á undanförnum árum þá er kostnaður fjármálakerfisins enn hlutfallslega hár hér á landi í alþjóðlegum samanburði. Það er bæði vegna smæðar íslenska hagkerfisins og þeirrar staðreyndar að þrír stærstu bankar landsins eru allir flokkaðir sem kerfislega mikilvæg fjármálafyrirtæki samkvæmt evrópskri löggjöf. Þeir þurfa því að uppfylla flókið og umfangsmikið regluverk Evrópusambandsins, sem er samið með miklu stærri fjármálafyrirtæki í huga, auk séríslenskra reglna.

Við sjáum því einstakt tækifæri í því að sameina Arion banka og Íslandsbanka. Þannig verður til skilvirkari og öflugri banki sem er betur í stakk búinn að mæta þörfum viðskiptavina, fjárfesta í auknum mæli í þróun og nýsköpun og styðja við vöxt íslensks efnahagslífs.

Hægt verður að ná fram umtalsverðri samlegð með samruna bankanna og draga þar með úr kostnaði í íslensku fjármálakerfi neytendum og hluthöfum bankanna til góða.

  • Arion banki er reiðubúinn að vinna náið með Samkeppniseftirlitinu til að tryggja að 5 milljarðar króna að lágmarki, af þeim árlega sparnaði sem myndi nást fram við samruna bankanna, skili sér til neytenda. Yfir 10 ára tímabil næmi beinn sparnaður íslenskra heimila því 50 milljörðum króna fyrir utan annan ávinning og sparnað sem af samrunanum myndi hljótast.
  • Að auki er Arion banki reiðubúinn að bjóða hluthöfum Íslandsbanka, þar með talið íslenska ríkinu sem á 42,5% í bankanum, 5% yfirverð miðað við meðaltal dagslokagengis síðustu 30 daga við ákvörðun skiptigengis félaganna í samrunanum. Hlutur ríkisins í sameinuðu félagi yrði yfir 20%.
  • Í gegnum ríkið og lífeyrissjóði ætti almenningur á Íslandi, með óbeinum hætti, meirihluta í sameinuðum banka.

Arion telur að samruni bankanna myndi uppfylla öll þrjú skilyrði leiðbeininga framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins um lárétta samruna; ávinningur neytenda er verulegur, hann er mælanlegur og næst ekki með öðrum leiðum.

Í bréfi Arion banka til Íslandsbanka, sem er meðfylgjandi, er nánar farið yfir þá kosti sem Arion banki sér í samruna bankanna.