19:21:35 Europe / Stockholm
2024-07-03 15:50:00

Moody’s Ratings hefur staðfest A2/P-1 lánshæfismat Arion banka fyrir langtíma og skammtíma innlán, og A3 lánshæfismat Arion banka fyrir langtíma útgáfur og almenn ótryggð skuldabréf. Grunnlánshæfismat (BCA) og aðlagað BCA hefur verið staðfest sem baa2.

Horfur fyrir langtíma innláns- og útgáfueinkunnir Arion banka eru stöðugar, sem endurspeglar væntingar Moody’s um að afkoma bankans byggist áfram á fjölbreyttum tekjustoðum næstu 12-18 mánuði.