Prenumeration
Beskrivning
Land | Island |
---|---|
Lista | Large Cap Iceland |
Sektor | Finans |
Industri | Bank |
Arion banki lauk í dag útboði á nýjum flokki víkjandi skuldabréfa sem telja til eiginfjárþáttar 2 (e. Tier 2), ARION T2I 36, fyrir samtals 10.040 m.kr.
Í flokkinn ARION T2I 36 bárust 52 tilboð að fjárhæð 15.520 m.kr. að nafnvirði á ávöxtunarkröfu á bilinu 4,73 – 5,49%. Tilboð að nafnvirði 10.040 m.kr. voru samþykkt á kröfunni 5,09%.
ARION T2I 36 er verðtryggt vaxtagreiðslubréf með tveimur vaxtagreiðslum á ári. Lokagjalddagi er í desember 2036, með innköllunarheimild af hálfu útgefanda í desember 2031 og á öllum vaxtagjalddögum þar á eftir (11,5NC6,5).
Stefnt er að töku skuldabréfanna til viðskipta á Nasdaq Iceland þann 2. júní 2025.
Skuldabréfin eru gefin út undir 3,0 milljarða evra Euro Medium Term Notes (EMTN) útgáfuramma bankans. Grunnlýsingu EMTN rammans má nálgast hér. Útboðið var ekki ætlað almennum fjárfestum.
Umsjónaraðili útboðsins var Markaðsviðskipti Arion banka.