Bifogade filer
Prenumeration
Beskrivning
Land | Island |
---|---|
Lista | Large Cap Iceland |
Sektor | Finans |
Industri | Bank |
Stjórn Arion banka ákvað á fundi sínum í dag að óska eftir því við stjórn Kviku banka að hafnar verði samrunaviðræður á milli félaganna tveggja. Hefur stjórnarformanni og bankastjóra Kviku banka verið sent bréf þess efnis.
Það er mat stjórnar Arion banka að samruni félaganna myndi skila verulegum verðmætum til hluthafa beggja félaga. Sameining félaganna fæli í sér tækifæri til tekjuaukningar, áhættudreifingar, hagræðingar og lækkunar á fjármögnunarkostnaði. Þannig gæti sameining félaganna aukið skilvirkni á íslenskum fjármálamarkaði sem kæmi viðskiptavinum beggja félaga til góða.
Ákveði stjórn Kviku banka að ganga til samrunaviðræðna er það von Arion banka að viðræður hefjist sem fyrst. Tillaga stjórnar Arion banka er að við ákvörðun skiptihlutfalls verði horft til markaðsverðs félaganna, eftir atvikum að teknu tilliti til gengisþróunar á tímabili sem stjórnir félaganna koma sér saman um.
Bréf stjórnar Arion banka til stjórnar Kviku banka er meðfylgjandi.