Tisdag 21 Juli | 06:21:01 Europe / Stockholm

Arion banki hf.: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun

2026-07-20 13:17:00

Vísað er til tilkynningar Arion banka sem birt var 22. maí 2026 um framkvæmd endurkaupaáætlunar. Í 29. viku 2026 keypti Arion banki eigin hluti á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland hf. og sænsk heimildarskírteini (SDR) á Nasdaq í Stokkhólmi. Sjá frekari upplýsingar hér að neðan.

Endurkaup á hlutum á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland í umrædd skipti voru eftirfarandi:

DagsetningTímiKeyptir hlutirViðskiptaverðKaupverðHlutir í eigu Arion
13.7.202612:14:11100.000185,5018.550.00025.261.260
14.7.202613:38:49200.000185,5037.100.00025.461.260
14.7.202615:10:04200.000185,5037.100.00025.661.260
15.7.202611:43:00350.000185,2564.837.50026.011.260
16.7.202615:09:07150.000186,5027.975.00026.161.260
17.7.202612:29:29395.000188,5074.457.50026.556.260


1.395.000
260.020.00026.556.260

Endurkaup á heimildarskírteinum á Nasdaq í Stokkhólmi voru eftirfarandi:

DagsetningTímiKeypt SDRViðskiptaverðKaupverð (SEK)SDR í eigu Arion
13.7.202612:09:011.56014,2622.246 3.755.911
13.7.202613:52:221.73314,2624.713 3.757.644
17.7.202614:17:276.00014,4086.400 3.763.644


9.293
133.359 3.763.644

Arion banki átti fyrir viðskiptin í viku 29 samtals 28.915.611 eigin hluti og heimildarskírteini og á bankinn í lok viku 29 samtals 30.319.904 eigin hluti og heimildarskírteini. Samtals á bankinn nú sem nemur 2,2% af útgefnum hlutum í félaginu. Frá því að endurkaupaáætlun hófst hefur bankinn keypt samtals 16.046.011 hluti fyrir 3.075.824.563kr. og 78.364 heimildarskírteini fyrir 1.142.064 sænskar krónur.

Heimilt er að kaupa allt að 532.000 SDR í Svíþjóð, sem samsvarar 0,04% af útgefnum hlutum og allt að 26.068.000 hluti á Íslandi, eða sem svara til 1,89% af útgefnum hlutum bankans (samtals um 1,93% af útgefnum hlutum). Fjárhæð endurkaupanna skal ekki nema hærri fjárhæð en sem svarar til 100.000.000 kr. í Svíþjóð og 4.900.000.000 kr. á Íslandi (samtals 5,0 milljarðar króna). Framkvæmd endurkaupaáætlunar lýkur þegar framangreindu er náð eða í síðasta lagi 31. desember 2026. Arion banki hf. hefur heimild til að stöðva framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar hvenær sem er á tímabilinu.

Endurkaupaáætlunin er framkvæmd í samræmi við lög og reglur á Íslandi og í Svíþjóð, eins og við á, þar með talin Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik („MAR“) og ákvæði framseldar reglugerðar framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins nr. 2016/1052, sem og íslensk lög um hlutafélög nr. 2/1995, lög nr. 60/2021 um aðgerðir gegn markaðssvikum auk reglna nr. 1290/2025 um sama efni.