21:33:18 Europe / Stockholm
2024-07-01 14:07:00

Vísað er til tilkynningar Arion banka sem birt var 4. apríl 2024 um framkvæmd endurkaupaáætlunar og 8. maí 2024 um áframhaldandi framkvæmd endurkaupaáætlunar. Í 26. viku 2024 keypti Arion banki eigin hluti á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland hf. Tekið er fram að endurkaup sænskra heimildarskírteina (SDR) á Nasdaq í Stokkhólmi samkvæmt áætluninni er lokið. Sjá frekari upplýsingar hér að neðan.

Endurkaup á hlutum á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland í umrædd skipti voru eftirfarandi:

DagsetningTímiKeyptir hlutirViðskiptaverðKaupverð (kr.)Hlutir í eigu Arion eftir viðskipti
24.6.202410:16:16200.000128,0025.600.00038.414.333
25.6.202412:58:29400.000128,5051.400.00038.814.333
26.6.202410:24:3464.882128,008.304.89638.879.215
26.6.202411:23:47200.000128,0025.600.00039.079.215
26.6.202415:09:29200.000127,2525.450.00039.279.215
27.6.202414:31:34600.000128,2576.950.00039.879.215
28.6.202414:53:02200.000127,2525.450.00040.079.215


1.864.882
238.754.89640.079.215






Endurkaupum á heimildarskírteinum á Nasdaq í Stokkhólmi er lokið.

Arion banki átti fyrir viðskiptin í viku 26 samtals 41.295.305 eigin hluti og heimildarskírteini og á bankinn í lok viku 26 samtals 43.160.187 eigin hluti og heimildarskírteini. Samtals á bankinn nú sem nemur 2,95% af útgefnum hlutum í félaginu. Frá því að endurkaupaáætlun hófst hefur bankinn keypt samtals 32.515.024 hluti og 355.086 heimildarskírteini.

Heimilt verður að kaupa allt að 365.000 SDR í Svíþjóð, sem samsvarar 0,025% af útgefnum hlutum og allt að 36.135.000 hluti á Íslandi, eða sem svara til 2,473% af útgefnum hlutum bankans (samtals um 2,5% af útgefnum hlutum). Fjárhæð endurkaupanna skal ekki nema hærri fjárhæð en sem svarar til 50.000.000 kr. í Svíþjóð og 4.950.000.000 kr. á Íslandi (samtals 5 milljarðar króna). Framkvæmd endurkaupaáætlunar lýkur þegar framangreindu er náð eða í síðasta lagi 31. desember 2024. Arion banki hf. hefur heimild til að stöðva framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar hvenær sem er á tímabilinu.
 
Endurkaupaáætlunin er framkvæmd í samræmi við lög og reglur á Íslandi og í Svíþjóð, eins og við á, þar með talin Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik („MAR“) og ákvæði framseldar reglugerðar framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins nr. 2016/1052, sem og íslensk lög um hlutafélög nr. 2/1995, lög nr. 60/2021 um aðgerðir gegn markaðssvikum auk reglna nr. 320/2022 um sama efni. Viðskipti með eigin hluti í samræmi við endurkaupaáætlunina verða birt opinberlega í samræmi við gildandi lög og reglur í Svíþjóð og á Íslandi, eins og við á.