Bifogade filer
Prenumeration
Beskrivning
Land | Island |
---|---|
Lista | Large Cap Stockholm |
Sektor | Finans |
Industri | Bank |
Vísað er til tilkynningar Arion banka sem birt var 25. júlí 2024 um framkvæmd endurkaupaáætlunar og 30. ágúst um stækkun endurkaupaáætlunar. Í 37. viku 2024 keypti Arion banki eigin hluti á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland hf. og sænsk heimildarskírteini (SDR) á Nasdaq í Stokkhólmi. Sjá frekari upplýsingar hér að neðan.
Endurkaup á hlutum á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland í umrædd skipti voru eftirfarandi:
Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð | Kaupverð (kr.) | Hlutir í eigu Arion |
9.9.2024 | 09:31:49 | 1.000.000 | 143 | 143.000.000 | 94.180.571 |
9.9.2024 | 10:59:55 | 55.000 | 143 | 7.865.000 | 94.235.571 |
9.9.2024 | 11:00:38 | 500.000 | 143 | 71.500.000 | 94.735.571 |
9.9.2024 | 11:03:46 | 45.000 | 143 | 6.435.000 | 94.780.571 |
10.9.2024 | 10:02:16 | 1.000.000 | 141,25 | 141.250.000 | 95.780.571 |
10.9.2024 | 12:15:31 | 100.000 | 139,5 | 13.950.000 | 95.880.571 |
11.9.2024 | 10:41:10 | 500.000 | 140 | 70.000.000 | 96.380.571 |
11.9.2024 | 14:38:52 | 100.000 | 138,5 | 13.850.000 | 96.480.571 |
3.300.000 | 467.850.000 | 96.480.571 |
Endurkaup á heimildarskírteinum á Nasdaq í Stokkhólmi voru eftirfarandi:
Dagsetning | Tími | Keypt SDR | Viðskiptaverð | Kaupverð (SEK) | SDR í eigu Arion |
13.9.2024 | 14:05:50 | 900 | 10,25 | 9.225 | 3.094.309 |
13.9.2024 | 14:23:15 | 877 | 10,25 | 8.989 | 3.095.186 |
13.9.2024 | 14:23:40 | 877 | 10,25 | 8.989 | 3.096.063 |
13.9.2024 | 15:24:45 | 29 | 10,25 | 297 | 3.096.092 |
2.683 | 27.501 | 3.096.092 |
Arion banki átti fyrir viðskiptin í viku 37 samtals 96.273.980 eigin hluti og heimildarskírteini og á bankinn í lok viku 37 samtals 99.576.663 eigin hluti og heimildarskírteini. Samtals á bankinn nú sem nemur 6,58% af útgefnum hlutum í félaginu. Frá því að endurkaupaáætlun hófst hefur bankinn keypt samtals 26.960.000 hluti og 15.120 heimildarskírteini í tengslum við áætlunina.
Heimilt er að kaupa allt að 384.000 SDR í Svíþjóð, sem samsvarar 0,0254% af útgefnum hlutum og allt að 31.321.362 hluti á Íslandi, eða sem svara til 2,0696% af útgefnum hlutum bankans (samtals um 2,0949% af útgefnum hlutum). Fjárhæð endurkaupanna skal ekki nema hærri fjárhæð en sem svarar til 50.000.000 kr. í Svíþjóð og 3.888.816.794 kr. á Íslandi (samtals 3.938.816.794 króna). Framkvæmd endurkaupaáætlunar lýkur þegar framangreindu er náð eða í síðasta lagi 12. mars 2025. Arion banki hf. hefur heimild til að stöðva framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar hvenær sem er á tímabilinu.
Endurkaupaáætlunin er framkvæmd í samræmi við lög og reglur á Íslandi og í Svíþjóð, eins og við á, þar með talin Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik („MAR“) og ákvæði framseldar reglugerðar framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins nr. 2016/1052, sem og íslensk lög um hlutafélög nr. 2/1995, lög nr. 60/2021 um aðgerðir gegn markaðssvikum auk reglna nr. 320/2022 um sama efni. Viðskipti með eigin hluti í samræmi við endurkaupaáætlunina eru birt opinberlega í samræmi við gildandi lög og reglur í Svíþjóð og á Íslandi, eins og við á.