Tisdag 31 Mars | 06:01:50 Europe / Stockholm
2026-03-30 19:00:00

Vísað er til tilkynningar Arion banka sem birt var 14. janúar 2026 um framkvæmd endurkaupaáætlunar. Í 14. viku 2026 keypti Arion banki eigin hluti á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland hf. og sænsk heimildarskírteini (SDR) á Nasdaq í Stokkhólmi. Endurkaupum er nú lokið á báðum mörkuðum. Endurkaupum er nú lokið á báðum mörkuðum. Sjá frekari upplýsingar hér að neðan.

Endurkaup á hlutum á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland í umrædd skipti voru eftirfarandi:

DagsetningTímiKeyptir hlutirViðskiptaverðKaupverðHlutir í eigu Arion
30.3.202610:38:33200.000175,0035.000.00050.769.893
30.3.202611:02:28200.000175,0035.000.00050.969.893


400.000
70.000.00050.969.893

Endurkaup á heimildarskírteinum á Nasdaq í Stokkhólmi voru eftirfarandi:

DagsetningTímiKeypt SDRViðskiptaverðKaupverð (SEK)SDR í eigu Arion
30.3.202614:34:4636713,104.8083.685.127
30.3.202614:46:1415313,102.0043.685.280


520
6.8123.685.280

Arion banki átti fyrir viðskiptin í viku 14 samtals 54.254.653 eigin hluti og heimildarskírteini og á bankinn í lok viku 14 samtals 54.655.173 eigin hluti og heimildarskírteini. Samtals á bankinn nú sem nemur 3,85% af útgefnum hlutum í félaginu. Frá því að endurkaupaáætlun hófst hefur bankinn keypt samtals 25.068.039 hluti fyrir 4.899.637.065 kr. og 161.848 heimildarskírteini fyrir 2.351.089 sænskar krónur.

Heimilt var að kaupa allt að 516.796 SDR í Svíþjóð, sem samsvarar 0,04% af útgefnum hlutum og allt að 25.322.997 hluti á Íslandi, eða sem svara til 1,78% af útgefnum hlutum bankans (samtals um 1,82% af útgefnum hlutum). Fjárhæð endurkaupanna skal ekki nema hærri fjárhæð en sem svarar til 100.000.000 kr. í Svíþjóð og 4.900.000.000 kr. á Íslandi (samtals 5,0 milljarðar króna). Framkvæmd endurkaupaáætlunar lýkur þegar framangreindu er náð eða í síðasta lagi 31. desember 2026, með fyrirvara um samþykki aðalfundar Arion banka hf. fyrir áframhaldandi endurkaupum. Arion banki hf. hefur heimild til að stöðva framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar hvenær sem er á tímabilinu.
 
Endurkaupaáætlunin var framkvæmd í samræmi við lög og reglur á Íslandi og í Svíþjóð, eins og við á, þar með talin Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik („MAR“) og ákvæði framseldar reglugerðar framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins nr. 2016/1052, sem og íslensk lög um hlutafélög nr. 2/1995, lög nr. 60/2021 um aðgerðir gegn markaðssvikum auk reglna nr. 1290/2025 um sama efni.