21:41:54 Europe / Stockholm
2024-05-31 15:10:00

Arion banka hf. (hér eftir „félagið“) bárust tilkynningar um nýtingu áskriftarréttinda ARIONW24 á þriðja nýtingartímabili réttindanna sem lauk 30. maí sl. Um er að ræða nýtingu á áskriftarréttindum að samtals 1.205.126 nýjum hlutum í félaginu.

Stjórn nýtti í dag heimild sína samkvæmt viðauka nr. 2, sbr. grein 3.5 í samþykktum félagsins, til að hækka hlutafé félagsins í þeim tilgangi að mæta nýtingu framangreindra áskriftarréttinda. Hlutafé félagsins verður því hækkað um 1.205.126 kr. og mun eftir hækkun standa í 1.462.335.382 kr. að nafnvirði, með útgáfu nýrra hluta. Hver hlutur er að fjárhæð ein króna og fylgir hverjum hlut eitt atkvæði.

Hlutafjárhækkunin verður tilkynnt til og skráð af Fyrirtækjaskrá Skattsins og nýir hlutir verða gefnir út af Nasdaq verðbréfamiðstöð og óskað eftir töku þeirra til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland.