Prenumeration
Beskrivning
| Land | Island |
|---|---|
| Lista | Large Cap Iceland |
| Sektor | Finans |
| Industri | Bank |
Intresserad av bolagets nyckeltal?
Analysera bolaget i Börsdata!
Vem äger bolaget?
All ägardata du vill ha finns i Holdings!
Arion banki verður með útboð á sértryggða skuldabréfaflokknum ARION CBI 28 þriðjudaginn 8. apríl 2025.
ARION CBI 28 er verðtryggður skuldabréfaflokkur með föstum 4,25% vöxtum og lokagjalddaga 20. september 2028.
Fyrirkomulag útboðs verður með þeim hætti að öll samþykkt tilboð verða tekin á hæstu samþykktu ávöxtunarkröfunni. Arion banki áskilur sér rétt til þess að samþykkja öll tilboð, hafna öllum tilboðum eða taka tilboðum að hluta.
Áætlaður uppgjörsdagur er 15. apríl 2025. Greiðsla fer fram með reiðufé.
Markaðsviðskipti Arion banka hafa umsjón með útboðinu. Tilboðum skal skilað á netfangið skuldabrefamidlun@arionbanki.is fyrir kl. 16:00 þann 8. apríl 2025.