Bifogade filer
Prenumeration
Beskrivning
| Land | Island |
|---|---|
| Lista | Large Cap Iceland |
| Sektor | Finans |
| Industri | Bank |
Intresserad av bolagets nyckeltal?
Analysera bolaget i Börsdata!
Vem äger bolaget?
All ägardata du vill ha finns i Holdings!
Í samræmi við starfskjarastefnu Arion banka hf. er í gildi kaupréttaráætlun á grundvelli 10. gr. laga um tekjuskatt nr. 90/2003 sem samþykkt var á aðalfundi bankans árið 2025.
Kaupréttaráætlunin gildir til fimm ára frá árinu 2027 til ársins 2031 og nær til allra fastráðinna starfsmanna bankans og dótturfélaganna Varðar trygginga hf. og Stefnis hf. og er markmið áætlunarinnar að samþætta hagsmuni starfsfólks við langtímahagsmuni samstæðunnar. Tekur hún við af eldri kaupréttaráætlun fyrir árin 2021 til 2026.
Í febrúar 2026 voru gerðir kaupréttarsamningar við starfsfólk bankans og dótturfélaga sem ná til samtals 6.289.218 hluta á ári til ársins 2031. Kaupgengi hlutanna er 199,61. Heildarfjöldi starfsfólks bankans og dótturfélaga með gilda kaupréttarsamninga er 837.
Enn er í gildi kaupréttarsamningar undir eldri kaupréttaráætlun fyrir árið 2026 fyrir samtals 437.511 hluti á genginu 140,56, 136.021 hluti á genginu 143,36 og 153.904 hluti á genginu 155,93.