Tisdag 22 Juli | 10:28:10 Europe / Stockholm

Prenumeration

Kalender

Est. tid*
2025-10-29 17:30 Kvartalsrapport 2025-Q3
2025-07-30 17:30 Kvartalsrapport 2025-Q2
2025-05-07 - Kvartalsrapport 2025-Q1
2025-03-13 - X-dag ordinarie utdelning ARION 11.50 ISK
2025-03-12 - Årsstämma
2025-02-12 - Bokslutskommuniké 2024
2024-10-30 - Kvartalsrapport 2024-Q3
2024-07-25 - Kvartalsrapport 2024-Q2
2024-04-30 - Kvartalsrapport 2024-Q1
2024-03-14 - X-dag ordinarie utdelning ARION 9.00 ISK
2024-03-13 - Årsstämma
2024-02-07 - Bokslutskommuniké 2023
2023-10-26 - Kvartalsrapport 2023-Q3
2023-07-26 - Kvartalsrapport 2023-Q2
2023-05-04 - Kvartalsrapport 2023-Q1
2023-03-16 - X-dag ordinarie utdelning ARION 8.50 ISK
2023-03-15 - Årsstämma
2023-02-08 - Bokslutskommuniké 2022
2022-10-26 - Kvartalsrapport 2022-Q3
2022-07-27 - Kvartalsrapport 2022-Q2
2022-05-04 - Kvartalsrapport 2022-Q1
2022-03-17 - X-dag ordinarie utdelning ARION 15.00 ISK
2022-03-16 - Årsstämma
2022-02-09 - Bokslutskommuniké 2021
2021-10-27 - Kvartalsrapport 2021-Q3
2021-07-28 - Kvartalsrapport 2021-Q2
2021-05-05 - Kvartalsrapport 2021-Q1
2021-03-17 - X-dag ordinarie utdelning ARION 1.74 ISK
2021-03-16 - Årsstämma
2021-02-10 - Bokslutskommuniké 2020
2020-10-28 - Kvartalsrapport 2020-Q3
2020-07-29 - Kvartalsrapport 2020-Q2
2020-05-15 - X-dag ordinarie utdelning ARION 0.00 ISK
2020-05-14 - Årsstämma
2020-05-06 - Kvartalsrapport 2020-Q1
2020-02-12 - Bokslutskommuniké 2019
2019-10-30 - Kvartalsrapport 2019-Q3
2019-08-09 - Årsstämma
2019-08-08 - Kvartalsrapport 2019-Q2
2019-05-08 - Kvartalsrapport 2019-Q1
2019-03-21 - X-dag ordinarie utdelning ARION 5.00 ISK
2019-02-13 - Bokslutskommuniké 2018
2018-10-31 - Kvartalsrapport 2018-Q3
2018-08-01 - Kvartalsrapport 2018-Q2

Beskrivning

LandIsland
ListaLarge Cap Iceland
SektorFinans
IndustriBank
Arion Bank bedriver bankverksamhet. Banken erbjuder finansiella tjänster inriktade mot lån, sparande och pension. Olika tjänster inkluderart traditionell kapitalförvaltning, lånefinansiering, samt fakturerings – och valutatjänster. En stor del av tjänsterna nås via internetbanken, där kunderna återfinns både bland privat- och företagskunder på den isländska marknaden. Huvudkontoret ligger i Reykjavik.
2025-07-21 18:00:00

Kvika banki og Arion banki tilkynntu 6. júlí sl. að stjórnir félaganna hefðu ákveðið að hefja viðræður um sameiningu félaganna og hafa undirritað viljayfirlýsingu þess efnis. Markmiðið með samruna er að sameina krafta félaganna og búa til sterkt fjármálafyrirtæki sem býður heildstæða þjónustu fyrir viðskiptavini.

Einn stærsti samruni á íslenskum fjármálamarkaði
Þetta er einn umfangsmesti samruni sem ráðist hefur verið í á íslenskum fjármálamarkaði og má gera ráð fyrir að ferlið taki þó nokkurn tíma. Reglulega verður greint frá stöðu mála og framvindu viðræðna eftir því sem við á og ástæða er til.

Fyrstu skrefin eru áreiðanleikakannanir og samrunaviðræður milli félaganna, og er sú vinna  þegar hafin. Stefnt er að því að óska eftir forviðræðum við Samkeppniseftirlitið í ágúst, þar sem kynnt verða markmið með samrunanum og sá ávinningur sem mun hljótast af honum, bæði fyrir viðskiptavini og íslenskan fjármálamarkað. Vonast er til að forviðræður, samningagerð og áreiðanleikakannanir klárist á næstu mánuðum. Að því gefnu að forviðræður við Samkeppniseftirlitið gangi vel, verður samruninn tilkynntur formlega til eftirlitsaðila og síðar lagður fyrir hluthafafundi beggja félaga.

Öflugri bankaþjónusta
Ef af samruna Kviku og Arion verður mun það styrkja og efla bankaþjónustu við viðskiptavini sameinaðs félags – einstaklinga, fyrirtæki og fjárfesta. Við samrunann skapast tækifæri til áhættudreifingar og breiðari tekjumyndunar en hann leiðir ekki síður til aukins hagræðis í starfsemi sameinaðs félags og þar með á íslenskum fjármálamarkaði.

Kvika hefur síðustu ár verið virkur keppinautur á mörkuðum, meðal annars með vörumerkið Auði sem hefur haft mikil áhrif á innlánamarkað og nýlega farið inn á húsnæðislánamarkað með góðum árangri. Eftir sameiningu munu vörumerki félaganna halda áfram að gegna mikilvægu hlutverki fyrir viðskiptavini.