Bifogade filer
Prenumeration
Beskrivning
Land | Island |
---|---|
Lista | Large Cap Iceland |
Sektor | Finans |
Industri | Bank |
Aðalfundur Arion banka 2022 var haldinn í dag, miðvikudaginn 16. mars.
Brynjólfur Bjarnason, stjórnarformaður, flutti skýrslu stjórnar og Benedikt Gíslason, bankastjóri, fór yfir starfsemi og afkomu bankans á árinu 2021. Ársreikningur bankans var samþykktur sem og tillaga um greiðslu arðs að upphæð 15 kr. á hlut, sem jafngildir um 22,5 milljörðum kr. Ákvað fundurinn að Deloitte ehf. gegni áfram hlutverki sínu sem endurskoðandi Arion banka.
Á fundinum voru eftirfarandi aðilar sjálfkjörnir í stjórn í samræmi við tillögu tilnefningarnefndar: Brynjólfur Bjarnason, Gunnar Sturluson, Liv Fiksdahl, Paul Richard Horner, og Steinunn Kristín Þórðardóttir. Eru stjórnarmenn áfram fimm. Brynjólfur Bjarnason var endurkjörinn formaður stjórnar og Paul Richard Horner endurkjörinn varaformaður. Sigurbjörg Ásta Jónsdóttir og Þröstur Ríkharðsson voru sjálfkjörin varamenn í stjórn. Breytingar voru gerðar á launum stjórnarmanna og launum nefndarmanna í tilnefningarnefnd bankans. Í tilnefningarnefnd bankans voru sjálfkjörin þau Júlíus Þorfinnsson og Auður Bjarnadóttir.
Starfskjarastefna bankans var samþykkt. Stjórn var einnig veitt heimild til breytinga á áður gerðri kaupréttaráætlun byggðri á 10. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt þannig að heimilt sé að gera kaupréttarsamninga við starfsfólk tiltekinna dótturfélaga bankans, Stefnis hf. og Varðar trygginga hf.
Fundurinn samþykkti að lækka hlutafé bankans um 150.000.000 hluti, til jöfnunar eigin hluta, úr 1.660.000.000 kr. að nafnvirði í 1.510.000.000 kr. að nafnvirði. Jafnframt var heimild til stjórnar til að kaupa allt að 10% af hlutafé bankans endurnýjuð.
Nánar má lesa um aðalfund Arion banka 2022 og samþykktir fundarins á vef bankans.
Árs- og sjálfbærnisskýrsla Arion banka fyrir árið 2021 er aðgengileg hér.