Bifogade filer
Prenumeration
Beskrivning
| Land | Island |
|---|---|
| Lista | Large Cap Iceland |
| Sektor | Finans |
| Industri | Bank |
Intresserad av bolagets nyckeltal?
Analysera bolaget i Börsdata!
Vem äger bolaget?
All ägardata du vill ha finns i Holdings!
Vísað er til tilkynningar Arion banka sem birt var 22. maí 2026 um framkvæmd endurkaupaáætlunar. Í 23. viku 2026 keypti Arion banki eigin hluti á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland hf. og sænsk heimildarskírteini (SDR) á Nasdaq í Stokkhólmi. Sjá frekari upplýsingar hér að neðan.
Endurkaup á hlutum á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland í umrædd skipti voru eftirfarandi:
| Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð | Kaupverð | Hlutir í eigu Arion |
| 1.6.2026 | 10:12:48 | 250.000 | 193,75 | 48.437.500 | 12.490.249 |
| 1.6.2026 | 10:13:36 | 100.000 | 193,75 | 19.375.000 | 12.590.249 |
| 1.6.2026 | 14:57:00 | 100.000 | 193,50 | 19.350.000 | 12.690.249 |
| 2.6.2026 | 10:27:49 | 200.000 | 194,00 | 38.800.000 | 12.890.249 |
| 2.6.2026 | 13:56:56 | 200.000 | 194,25 | 38.850.000 | 13.090.249 |
| 4.6.2026 | 11:36:06 | 100.000 | 196,00 | 19.600.000 | 13.190.249 |
| 4.6.2026 | 11:36:46 | 200.000 | 196,00 | 39.200.000 | 13.390.249 |
| 4.6.2026 | 12:21:27 | 200.000 | 196,00 | 39.200.000 | 13.590.249 |
| 5.6.2026 | 10:08:16 | 133.979 | 195,50 | 26.192.895 | 13.724.228 |
| 5.6.2026 | 10:21:04 | 200.000 | 195,50 | 39.100.000 | 13.924.228 |
| 5.6.2026 | 14:24:17 | 295.000 | 195,00 | 57.525.000 | 14.219.228 |
| 1.978.979 | 385.630.395 | 14.219.228 |
Endurkaup á heimildarskírteinum á Nasdaq í Stokkhólmi voru eftirfarandi:
| Dagsetning | Tími | Keypt SDR | Viðskiptaverð | Kaupverð (SEK) | SDR í eigu Arion |
| 1.6.2026 | 09:29:52 | 9.000 | 14,5 | 130.680 | 3.707.280 |
| 3.6.2026 | 10:28:23 | 1.883 | 14,5 | 27.304 | 3.709.163 |
| 3.6.2026 | 10:28:23 | 6.117 | 14,5 | 88.697 | 3.715.280 |
| 17.000 | 246.680 | 3.715.280 |
Arion banki átti fyrir viðskiptin í viku 23 samtals 15.938.529 eigin hluti og heimildarskírteini og á bankinn í lok viku 23 samtals 17.934.508 eigin hluti og heimildarskírteini. Samtals á bankinn nú sem nemur 1,30% af útgefnum hlutum í félaginu. Frá því að endurkaupaáætlun hófst hefur bankinn keypt samtals 3.708.979 hluti fyrir 730.585.395 kr. og 30.000 heimildarskírteini fyrir 440.380 sænskar krónur.
Heimilt er að kaupa allt að 532.000 SDR í Svíþjóð, sem samsvarar 0,04% af útgefnum hlutum og allt að 26.068.000 hluti á Íslandi, eða sem svara til 1,89% af útgefnum hlutum bankans (samtals um 1,93% af útgefnum hlutum). Fjárhæð endurkaupanna skal ekki nema hærri fjárhæð en sem svarar til 100.000.000 kr. í Svíþjóð og 4.900.000.000 kr. á Íslandi (samtals 5,0 milljarðar króna). Framkvæmd endurkaupaáætlunar lýkur þegar framangreindu er náð eða í síðasta lagi 31. desember 2026. Arion banki hf. hefur heimild til að stöðva framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar hvenær sem er á tímabilinu.
Endurkaupaáætlunin er framkvæmd í samræmi við lög og reglur á Íslandi og í Svíþjóð, eins og við á, þar með talin Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik („MAR“) og ákvæði framseldar reglugerðar framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins nr. 2016/1052, sem og íslensk lög um hlutafélög nr. 2/1995, lög nr. 60/2021 um aðgerðir gegn markaðssvikum auk reglna nr. 1290/2025 um sama efni.