Prenumeration
Beskrivning
Land | Island |
---|---|
Lista | Large Cap Stockholm |
Sektor | Finans |
Industri | Bank |
Skilavald Seðlabanka Íslands hefur samþykkt skilaáætlun Arion banka hf.
Með samþykkt skilaáætlunarinnar tók skilavaldið ákvörðun um lágmarkskröfu um eiginfjárgrunn og hæfar skuldbindingar (MREL), í samræmi við lög um skilameðferð lánastofnana og verðbréfafyrirtækja, nr. 70/2020, með síðari breytingum.
MREL-kröfur Arion Banka eru 19,6% af áhættugrunni (e. Total Risk Exposure Amount), og 6,0% af heildaráhættuskuldbindingum (e. Total Exposure Measure). Við lok 2. ársfjórðungs 2024 voru hlutföllin 30,9% (MREL-TREA) og 24,2% (MREL-TEM) hjá bankanum, töluvert umfram kröfur.
Undirskipaður hluti MREL-krafna bankans jafngildir 13,5% af áhættugrunni. Kröfuna um undirskipan má einungis uppfylla með skuldbindingum sem eru neðar í kröfuröð en þær sem eru undanþegnar eftirgjöf.
MREL-kröfurnar byggja á fjárhagsupplýsingum við árslok 2023. Kröfurnar taka gildi við dagsetningu tilkynningarinnar.