Bifogade filer
Kurs & Likviditet
Prenumeration
Beskrivning
Land | Island |
---|---|
Lista | Large Cap Stockholm |
Sektor | Finans |
Industri | Bank |
Vísað er til tilkynningar Arion banka sem birt var 5. september 2022 um framkvæmd endurkaupaáætlunar þegar Fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands (FME) veitti bankanum heimild til að framkvæma endurkaup á eigin bréfum á Íslandi og á heimildarskírteinum útgefnum í Svíþjóð. Jafnframt er vísað til tilkynningar Arion banka sem birt var 16. nóvember 2022 varðandi lok fyrri endurkaupaáætlunar. Stjórnendur bankans hafa nú ákveðið að hefja nýja endurkaupaáætlun. Endurkaupaáætlun þessi veitir heimild til endurkaupa á allt að 12.800.000 hlutum og heimildarskírteinum (SDR) fyrir allt að 2 milljarða króna sem nemur um 0,85% af útgefnu hlutafé bankans. Markmið endurkaupa er að lækka hlutafé bankans í samræmi við arðgreiðslustefnu.
Acro verðbréf hf. mun hafa umsjón með framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar á Íslandi og Landsbankinn hf. í Svíþjóð. Áætlunin tekur gildi á báðum mörkuðum þann 14. desember 2022 og gildir til 15. mars 2023. Mun Acro og Landsbankinn taka allar viðskiptaákvarðanir er varða kaup á hlutum og tímasetningu kaupanna óháð bankanum. Arion banki hf. hefur heimild til að stöðva framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar hvenær sem er á þessu tímabili.
Heimilt verður að kaupa allt að 640.000 SDR í Svíþjóð, sem samsvarar 0,04% af útgefnum hlutum og allt að 12.160.000 hluti á Íslandi, eða sem svara til 0,81% af útgefnum hlutum (samtals um 0,85% af útgefnum hlutum bankans). Fjárhæð endurkaupanna skal ekki nema hærri fjárhæð en sem svarar til 100.000.000 kr. í Svíþjóð og 1.900.000.000 kr. á Íslandi (samtals 2 milljarðar íslenskra króna). Þegar endurkaupaáætlunin hefst á bankinn 39.377.461 eigin hluti sem jafngildir um 2,61% af útgefnum hlutum bankans.
Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar verður þannig háttað að kaup hvers dags í kauphöll Nasdaq Ísland og Nasdaq Stokkhólmi verða að hámarki 25% af meðaldagsveltu með hlutabréf eða SDR bankans á undangengnum 20 viðskiptadögum áður en kaup gerast. Í kauphöll Nasdaq Stokkhólmi mega kaup aðeins eiga sér stað innan þess verðbils sem gildir á Nasdaq Stokkhólmi, þar sem verðbilið nær frá hæsta kaupverði (e. best bid) til lægsta söluverðs (e. best offer) sem í gildi er og tekið saman hjá Nasdaq Stokkhólmi, allt í samræmi við kafla H í viðbæti D við Reglubók fyrir útgefendur hlutafjár á aðalmörkuðum Nasdaq Nordic sem tók gildi þann 1. september 2021.
Í kauphöll Nasdaq á Íslandi skal verð fyrir hvern hlut að hámarki samsvara hæsta verði í síðustu óháðu viðskiptum eða hæsta fyrirliggjandi óháða kauptilboð í viðskiptakerfi Nasdaq Ísland, hvort sem hærra er, allt í samræmi við ákvæði framseldar reglugerðar framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins nr. 2016/1052, sem lagagildi hefur á Íslandi.
Endurkaupaáætlunin er framkvæmd í samræmi við lög og reglur á Íslandi og í Svíþjóð, eins og við á, þar með talin Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik („MAR“) og ákvæði framseldar reglugerðar framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins nr. 2016/1052, sem og íslensk lög um hlutafélög nr. 2/1995, lög nr. 60/2021 um aðgerðir gegn markaðssvikum auk reglugerðar nr. 320/2022 um sama efni. Viðskipti með eigin hluti í samræmi við endurkaupaáætlunina verða birt opinberlega í samræmi við gildandi lög og reglur í Svíþjóð og á Íslandi, eins og við á.