Bifogade filer
Prenumeration
Beskrivning
Land | Island |
---|---|
Lista | Large Cap Stockholm |
Sektor | Finans |
Industri | Bank |
Arion banki hf. hefur undirritað samninga við Íslandsbanka, Kviku og Landsbankann um viðskiptavakt á sértryggðum skuldabréfum útgefnum af Arion banka á Nasdaq Iceland hf.
Tilgangur samninganna er að efla viðskipti með þau skuldabréf sem samningarnir taka til í því skyni að eðlilegt markaðsverð skapist á skuldabréfunum og verðmyndun verði með skilvirkum og gagnsæjum hætti.
Viðskiptavakar munu daglega setja fram kaup- og sölutilboð í skuldabréfin. Lágmarksfjárhæð að nafnvirði skuldabréfa skal vera eftirfarandi:
Stærð flokks (ma. kr.) | Lágmarkstilboð (ISK m.) |
0-3 | 0 |
3-5 | 20 |
5-10 | 60 |
>10 | 80 |
Skuldabréfaflokkarnir ARION CBI 29, ARION CBI 25, ARION CBI 26 og ARION CBI 48 eru undanskildir framangreindum skilyrðum. Lágmarksfjárhæð tilboða í ARION CBI 29, ARION CBI 25, ARION CBI 26 verður 40 milljón kr. og skal lágmarksfjárhæð tilboða í ARION CBI 48 vera 20 milljón kr.
Hámarksmunur kaup- og sölutilboða fer eftir árafjölda til lokagjalddaga á hverjum tíma sbr. neðangreinda töflu.
Árafjöldi til lokagjalddaga | Hámarksmunur óverðtryggð skuldabréf | Hámarksmunur verðtryggðra skuldabréfa |
0-6 mán | Ekki skilgreindur hámarksmunur | Ekki skilgreindur hámarksmunur |
6 mán – 2 ár | 0,20% | Ekki skilgreindur hámarksmunur |
2-4 ár | 0,30% | 0,30% |
4-6 ár | 0,35% | 0,35% |
6-9 ár | 0,60% | 0,60% |
9-12 ár | 0,70% | 0,70% |
12-18 ár | 1,00% | 1,00% |
18 ár eða lengra | 1,15% | 1,15% |
Arion banki greiðir viðskiptavökum þóknun og mun veita viðskiptavökum aðgang að verðbréfalánum. Hámarkslán í hverjum flokki sértryggðra skuldabréfa er 320 m.kr. að nafnverði fyrir markflokka en 80 m.kr. að nafnvirði fyrir aðra flokka.