Bifogade filer
Prenumeration
Beskrivning
| Land | Island |
|---|---|
| Lista | Large Cap Iceland |
| Sektor | Finans |
| Industri | Bank |
Arion banki hf. hefur undirritað samninga við Íslandsbanka, Kviku og Landsbankann um viðskiptavakt á sértryggðum skuldabréfum útgefnum af Arion banka á Nasdaq Iceland hf.
Tilgangur samninganna er að efla viðskipti með þau skuldabréf sem samningarnir taka til í því skyni að eðlilegt markaðsverð skapist á skuldabréfunum og verðmyndun verði með skilvirkum og gagnsæjum hætti.
Viðskiptavakar munu daglega setja fram kaup- og sölutilboð í skuldabréfin. Lágmarksfjárhæð að nafnvirði skuldabréfa skal vera eftirfarandi:
| Stærð flokks (ma. kr.) | Lágmarkstilboð (ISK m.) |
| 0-3 | 0 |
| 3-5 | 20 |
| 5-10 | 60 |
| >10 | 80 |
Skuldabréfaflokkarnir ARION CBI 29, ARION CBI 26 og ARION CBI 48 eru undanskildir framangreindum skilyrðum. Lágmarksfjárhæð tilboða í ARION CBI 29, ARION CBI 26 verður 40 milljón kr. og skal lágmarksfjárhæð tilboða í ARION CBI 48 vera 20 milljón kr.
Hámarksmunur kaup- og sölutilboða fer eftir árafjölda til lokagjalddaga á hverjum tíma sbr. neðangreinda töflu.
| Árafjöldi til lokagjalddaga | Hámarksmunur óverðtryggð skuldabréf | Hámarksmunur verðtryggðra skuldabréfa |
| 0-6 mán | Ekki skilgreindur hámarksmunur | Ekki skilgreindur hámarksmunur |
| 6 mán – 2 ár | 0,20% | Ekki skilgreindur hámarksmunur |
| 2-4 ár | 0,30% | 0,30% |
| 4-6 ár | 0,35% | 0,35% |
| 6-9 ár | 0,60% | 0,60% |
| 9-12 ár | 0,70% | 0,70% |
| 12-18 ár | 1,00% | 1,00% |
| 18 ár eða lengra | 1,15% | 1,15% |
Arion banki greiðir viðskiptavökum þóknun og mun veita viðskiptavökum aðgang að verðbréfalánum. Hámarkslán í hverjum flokki sértryggðra skuldabréfa er 320 m.kr. að nafnverði fyrir markflokka en 80 m.kr. að nafnvirði fyrir aðra flokka.