Kurs & Likviditet
Prenumeration
Beskrivning
Land | Island |
---|---|
Lista | Large Cap Stockholm |
Sektor | Finans |
Industri | Bank |
Arion banki verður með útboð á nýjum grænum skuldabréfaflokki, ARION 26 1222 GB, fimmtudaginn 16. desember næstkomandi. Skuldabréfin verða gefin út undir grænni fjármálaumgjörð bankans og skráð í kauphöll Nasdaq Iceland.
Skuldabréfin eru til 5 ára og bera fasta óverðtryggða vexti og einni endurgreiðslu höfuðstóls á lokagjalddaga árið 2026.
Uppgjörsdagur viðskipta er 22. desember 2021.
Verðbréfamiðlun Arion banka hefur umsjón með útboðinu. Tilboðum skal skilað á tölvupóstfangið skuldabrefamidlun@arionbanki.is fyrir kl 16:00 þann 16. desember 2021.
Frekari upplýsingar má nálgast á vefsíðu bankans:
https://wwwv2.arionbanki.is/bankinn/fjarfestatengsl/skuldabrefafjarfestar/graen-skuldabref/
Í samræmi við ákvæði 2. tl. 1. mgr. 85. gr. í lögum nr. 70/2020 um skilameðferð lánastofnana( með breytingum), flokkast skuldabréf þessi sem almennar ótryggðar kröfur. Bréfin uppfylla ákvæði í grein 72b(2) í reglugerð Evrópusambandsins nr. 575/2013 um varfærniskröfur vegna starfsemi fjármálafyrirtækja, að undanskildu ákvæði greinar 72b(2)(d) um undirskipan. Þessi skuldabréf flokkast því sem ótryggð skuldabréf (e. senior preferred).