Bifogade filer
Kurs & Likviditet
Prenumeration
Beskrivning
Land | Island |
---|---|
Lista | Large Cap Stockholm |
Sektor | Finans |
Industri | Bank |
Arion banki heldur útboð á sértryggðu skuldabréfaflokkunum ARION CB 27 og ARION CBI 30 miðvikudaginn 3. júlí 2024.
Fyrirkomulag útboðs verður með þeim hætti að öll samþykkt tilboð verða tekin á hæstu samþykktu ávöxtunarkröfunni. Arion banki áskilur sér rétt til þess að samþykkja öll tilboð, hafna öllum tilboðum eða taka tilboðum að hluta.
Í tengslum við útboðið fer fram skiptiútboð þar sem eigendur flokksins ARION CBI 25 eiga þess kost að selja bréf í flokknum gegn kaupum í ofangreindu útboði. Hreint verð í skiptiútboðinu er 99,288.
Áætlaður uppgjörsdagur er 10. júlí 2024. Greiða skal fyrir flokkana með reiðufé og/eða með skiptum á ARION CBI 25.
Markaðsviðskipti Arion banka hafa umsjón með útboðinu. Tilboðum skal skilað á netfangið skuldabrefamidlun@arionbanki.is fyrir kl. 16:00 þann 3. júlí 2024.