Kurs & Likviditet
Prenumeration
Beskrivning
Land | Island |
---|---|
Lista | Large Cap Stockholm |
Sektor | Finans |
Industri | Bank |
Arion banki heldur útboð á sértryggða skuldabréfaflokknum ARION CBI 30 fimmtudaginn 4. janúar 2024
Útboðið er með hollensku fyrirkomulagi þar sem öll samþykkt tilboð verða seld á sama verði, á hæstu samþykktu ávöxtunarkröfunni. Arion banki áskilur sér rétt til þess að samþykkja öll tilboð, hafna öllum tilboðum eða taka tilboðum að hluta.
Í tengslum við útboðið fer fram skiptiútboð þar sem eigendur flokksins ARION CB 24 eiga þess kost að selja bréf í flokknum gegn kaupum í ofangreindu útboði. Hreint verð í skiptiútboðinu er 99.0926.
Áætlaður uppgjörsdagur er 11. janúar 2024. Greiða skal fyrir flokkinn með reiðufé og/eða með skiptum á ARION CB 24.
Lánshæfiseinkunn sértryggða skuldabréfa Arion banka er Aa2 samkvæmt mati Moody´s.
Markaðsviðskipti Arion banka hafa umsjón með útboðinu. Tilboðum skal skilað til skuldabrefamidlun@arionbanki.is fyrir kl. 16:00 þann 4. janúar 2024.