Bifogade filer
Kurs & Likviditet
Prenumeration
Beskrivning
Land | Island |
---|---|
Lista | Large Cap Stockholm |
Sektor | Finans |
Industri | Bank |
Í fyrri tilkynningu var ekki notað rétt hreint verð í skipt skiptiútboðinu. Rétt verð er 99,419.
Arion banki heldur útboð á sértryggðu skuldabréfaflokkunum ARION CBI 30 og ARION CB 27 fimmtudaginn 8. febrúar 2024.
Útboðið er með hollensku fyrirkomulagi þar sem öll samþykkt tilboð verða seld á sama verði, á hæstu samþykktu ávöxtunarkröfunni. Arion banki áskilur sér rétt til þess að samþykkja öll tilboð, hafna öllum tilboðum eða taka tilboðum að hluta.
Í tengslum við útboðið fer fram skiptiútboð þar sem eigendur flokksins ARION CB 24 eiga þess kost að selja bréf í flokknum gegn kaupum í ofangreindu útboði. Hreint verð í skiptiútboðinu er 99,419.
Áætlaður uppgjörsdagur er 15. febrúar 2024. Greiða skal fyrir flokkinn með reiðufé og/eða með skiptum á ARION CB 24.
Markaðsviðskipti Arion banka hafa umsjón með útboðinu. Tilboðum skal skilað til skuldabrefamidlun@arionbanki.is fyrir kl. 16:00 þann 8. febrúar 2024.