14:47:50 Europe / Stockholm

Kurs & Likviditet

Kursutveckling och likviditet under dagen för detta pressmeddelande

Prenumeration

Kalender

2024-10-30 Kvartalsrapport 2024-Q3
2024-07-25 Kvartalsrapport 2024-Q2
2024-04-30 Kvartalsrapport 2024-Q1
2024-03-14 Ordinarie utdelning ARION 9.00 ISK
2024-03-14 Ordinarie utdelning ARION SDB 0.69 ISK
2024-03-13 Årsstämma 2024
2024-02-07 Bokslutskommuniké 2023
2023-10-26 Kvartalsrapport 2023-Q3
2023-07-26 Kvartalsrapport 2023-Q2
2023-05-04 Kvartalsrapport 2023-Q1
2023-03-16 Ordinarie utdelning ARION 8.50 ISK
2023-03-16 Ordinarie utdelning ARION SDB 0.63 ISK
2023-03-15 Årsstämma 2023
2023-02-08 Bokslutskommuniké 2022
2022-10-26 Kvartalsrapport 2022-Q3
2022-07-27 Kvartalsrapport 2022-Q2
2022-05-04 Kvartalsrapport 2022-Q1
2022-03-17 Ordinarie utdelning ARION SDB 1.09 ISK
2022-03-17 Ordinarie utdelning ARION 15.00 ISK
2022-03-16 Årsstämma 2022
2022-02-09 Bokslutskommuniké 2021
2021-10-27 Kvartalsrapport 2021-Q3
2021-07-28 Kvartalsrapport 2021-Q2
2021-05-05 Kvartalsrapport 2021-Q1
2021-03-17 Ordinarie utdelning ARION SDB 0.12 ISK
2021-03-17 Ordinarie utdelning ARION 1.74 ISK
2021-03-16 Årsstämma 2021
2021-02-10 Bokslutskommuniké 2020
2020-10-28 Kvartalsrapport 2020-Q3
2020-07-29 Kvartalsrapport 2020-Q2
2020-05-15 Ordinarie utdelning ARION SDB 0.00 ISK
2020-05-15 Ordinarie utdelning ARION 0.00 ISK
2020-05-14 Årsstämma 2020
2020-05-06 Kvartalsrapport 2020-Q1
2020-02-12 Bokslutskommuniké 2019
2019-10-30 Kvartalsrapport 2019-Q3
2019-08-09 Årsstämma 2019
2019-08-08 Kvartalsrapport 2019-Q2
2019-05-08 Kvartalsrapport 2019-Q1
2019-03-21 Ordinarie utdelning ARION 5.00 ISK
2019-03-21 Ordinarie utdelning ARION SDB 0.39 ISK
2019-02-13 Bokslutskommuniké 2018
2018-10-31 Kvartalsrapport 2018-Q3
2018-08-01 Kvartalsrapport 2018-Q2

Beskrivning

LandIsland
ListaLarge Cap Stockholm
SektorFinans
IndustriBank
Arion Bank bedriver bankverksamhet. Banken erbjuder finansiella tjänster inriktade mot lån, sparande och pension. Olika tjänster inkluderart traditionell kapitalförvaltning, lånefinansiering, samt fakturerings – och valutatjänster. En stor del av tjänsterna nås via internetbanken, där kunderna återfinns både bland privat- och företagskunder på den isländska marknaden. Huvudkontoret ligger i Reykjavik.
2021-09-06 15:38:00

Í dag taka gildi breytingar á framkvæmdastjórn og skipuriti Arion banka. Tveir nýir framkvæmdastjórar koma inn í framkvæmdastjórn bankans og nýtt svið, upplifun viðskiptavina, hefur verið sett á laggirnar. Með nýju sviði fjölgar um einn í framkvæmdastjórn bankans.

Ólafur Hrafn Höskuldsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri fjármálasviðs. Hann tekur við af Stefáni Péturssyni, sem hefur komist að samkomulagi við bankann um starfslok eftir að hafa sinnt starfi framkvæmdastjóra fjármálasviðs og setið í framkvæmdastjórn bankans frá árinu 2010. Stefán mun láta af störfum á næstu dögum en sinna áfram ráðgjafarverkefnum fyrir bankann.

Ólafur Hrafn, sem tekur nú sæti í framkvæmdastjórn Arion banka, hefur stýrt stefnumótun og þróun á skrifstofu bankastjóra frá árinu 2019. Ólafur starfaði hjá Royal Bank of Scotland um sex ára skeið í London og New York en tók við starfi framkvæmdastjóra hjá Títan fjárfestingafélagi árið 2016, sem hann sinnti til ársins 2019. Þar áður vann hann meðal annars hjá CreditInfo í Þýskalandi og Straumi fjárfestingabanka. Ólafur Hrafn situr í stjórn Varðar og Landeyjar og er með Cand.oecon gráðu frá Háskóla Íslands.

Steinunn Hlíf Sigurðardóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri upplifunar viðskiptavina og tekur sæti í framkvæmdastjórn. Steinunn hefur undanfarin ár verið framkvæmdastjóri ráðgjafar og þjónustu hjá Verði. Undir sviðið upplifun viðskiptavina falla meðal annars markaðsmál bankans og viðskiptaumsjón. Hlutverk sviðsins er að tryggja að upplifun viðskiptavina af þjónustu og þjónustuleiðum bankans, allt frá markaðssetningu til frágangs viðskipta, verði sem allra best. Stofnun sviðsins er einnig liður í auknu samstarfi Arion banka og Varðar og mótunar heildstæðrar fjármálaþjónustu sem er aðgengileg í gegnum fjölbreyttar og nútímalegar þjónustuleiðir.

Steinunn Hlíf hefur setið í framkvæmdastjórn Varðar frá árinu 2008. Hún starfaði hjá Kaupþingi/KB banka á árunum 1999-2005 og gegndi þar m.a. starfi markaðsstjóra. Steinunn starfaði einnig sem markaðsstjóri Sjóvár og forstöðumaður á sölu- og markaðssviði Landsbankans áður en hún hóf störf hjá Verði. Steinunn er með BA-gráðu í viðskiptafræði frá Flagler College.

Benedikt Gíslason, bankastjóri Arion banka:
„Ég vil þakka Stefáni Péturssyni fyrir afar gott samstarf og óska honum velfarnaðar í framtíðinni. Stefán hefur verið einn af lykilstarfsmönnum Arion banka í rúman áratug og gegnt mikilvægu hlutverki í uppbyggingu og árangri bankans. Þar stendur upp úr að byggja aftur upp traust á bankanum á alþjóðlegum skuldabréfamörkuðum og skráning bankans í kauphallirnar á Íslandi og í Stokkhólmi árið 2018 sem markaði tímamót á íslenskum fjármálamarkaði. Ólafur Hrafn Höskuldsson, sem tekur nú við fjármálsviði Arion banka, þekkir bankann, stefnu hans og markmið afar vel eftir að hafa farið fyrir stefnumótun og viðskiptaþróun bankans í um tvö ár.

Á undanförnum árum hefur snertingum okkar við viðskiptavini fjölgað mikið. Þær voru á síðasta ári að meðaltali 120 þúsund á dag og 99% í gegnum stafrænar þjónustuleiðir eins og Arion appið og netbankann. Kröfur viðskiptavina aukast jafnt og þétt eftir því sem aðgengi að fjármálaþjónustu verður greiðara og vægi stafrænnar þjónustu eykst. Krafa viðskiptavina varðandi þjónustu er skýr: upplifunin verður að vera jákvæð og hnökralaus. Það er því ekki að ástæðulausu sem við setjum á laggirnar sérstakt svið innan bankans sem hefur það meginhlutverk að samræma upplifun viðskiptavina af þjónustu og þjónustuleiðum bankans og gera hana enn betri. Hið nýja svið gegnir hér lykilhlutverki og það er mikill fengur fyrir okkur að fá Steinunni Hlíf Sigurðardóttur með sína miklu reynslu af fjármálamarkaði til að stýra sviðinu.

Ég býð Ólaf Hrafn og Steinunni Hlíf velkomin í framkvæmdastjórn Arion banka.“