Samkomulag um kaup Rapyd á Valitor framlengt til 1. maí 2022
2021-12-31 13:59:00
Eins og fram kom í tilkynningu Arion banka þann 1. júlí 2021 þegar tilkynnt var um kaup Rapyd á Valitor þá eru kaupin gerð með fyrirvara um samþykki Samkeppniseftirlitsins. Gert var ráð fyrir því að niðurstaða skoðunar Samkeppniseftirlitsins lægi fyrir fyrir lok árs 2021, en svo verður ekki. Rapyd og Arion banki hafa því framlengt samkomulag sitt fram til 1. maí 2022.