Prenumeration
Beskrivning
| Land | Island |
|---|---|
| Lista | Large Cap Iceland |
| Sektor | Finans |
| Industri | Bank |
Intresserad av bolagets nyckeltal?
Analysera bolaget i Börsdata!
Vem äger bolaget?
All ägardata du vill ha finns i Holdings!
Aðalfundur Arion banka hf. verður haldinn í höfuðstöðvum bankans að Borgartúni 19, 105 Reykjavík, þann 11. mars 2026, kl. 16:00. Einnig verður gefinn kostur á rafrænni þátttöku. Atkvæðagreiðsla á fundinum fer eingöngu fram með rafrænum hætti. Fundurinn fer fram á íslensku en boðið verður upp á túlkaþjónustu á ensku.
Til þess að hægt sé að tryggja tímanlega úrvinnslu á beiðnum hluthafa um aðgangsupplýsingar skulu þeir óska eftir aðgangi á vefsíðunni https://www.lumiconnect.com/events/arionbankagm2026 eigi síðar sólarhring fyrir fundinn, eða kl. 16:00 þann 10. mars 2026. Sama gildir ef hluthafar vilja leggja fram skriflegar spurningar varðandi dagskrá eða framlögð skjöl sem þeir óska svara við á fundinum. Þær skulu sendar á netfangið hluthafar@arionbanki.is en einnig er hægt að senda póst á sama netfang fyrir almennar fyrirspurnir í tengslum við aðalfundinn.
Tillögur tilnefningarnefndar, dagskrá, tillögur til aðalfundar og önnur skjöl eru aðgengileg á www.arionbanki.is/gm.
Frá og með lokun markaða 3. mars 2026 til og með 13. mars 2026 verður óheimilt að yfirfæra SDR-heimildarskírteini í eða úr hlutum í Arion banka milli markaða.