Bifogade filer
Prenumeration
Beskrivning
Land | Island |
---|---|
Lista | Large Cap Stockholm |
Sektor | Finans |
Industri | Bank |
Arion banki hefur gefið út árs- og sjálfbærniskýrslu og áhættuskýrslu fyrir árið 2024. Skýrslurnar eru aðgengilegar á vef bankans. Ársreikningur bankans fyrir árið 2024 var birtur 12. febrúar.
Auk umfjöllunar um þjónustu bankans, helstu verkefni og fjárhagsniðurstöður ársins 2024, inniheldur Árs- og sjálfbærniskýrsla Arion banka fyrir árið 2024 m.a. umfjöllun um mannauðsmál, umhverfis- og loftslagsmál, fjármagnaðan útblástur, sjálfbær fjármál og sjálfbærniuppgjör í samræmi við GRI Standards og UFS leiðbeiningar Nasdaq. Bankinn hefur hafið innleiðingu á ESRS-staðlinum, European Sustainability Reporting Standard, og nær aukin skýrslugjöf í samræmi við staðalinn til allrar samstæðunnar.
Áhættuskýrsla bankans fjallar um helstu áhættuþætti Arion banka á ítarlegan hátt og er þar að finna greinargóðar upplýsingar um áhættu- og eiginfjárstýringu bankans. Auk þess er að finna upplýsingar um stjórnskipulag bankans með tilliti til áhættu sem og starfskjarastefnu. Skýrslan er gefin út ásamt upplýsingasniðmátum Evrópsku bankaeftirlitsstofnunarinnar (EBA) og ætti að lesast samhliða þeim.