Bifogade filer
Kurs & Likviditet
Prenumeration
Beskrivning
Land | Island |
---|---|
Lista | Large Cap Stockholm |
Sektor | Finans |
Industri | Bank |
Tilnefningarnefnd Arion banka óskaði eftir framboðum til stjórnar Arion banka þann 4. janúar sl. og rann fresturinn út þann 2. febrúar 2024. Tilnefningarnefndin hefur nú ákveðið að framlengja frest til að skila inn framboði til nefndarinnar, kjósi frambjóðendur að nefndin leggi mat á framboðið, til 21. febrúar næstkomandi. Aðalfundur Arion banka fyrir árið 2024 verður haldinn þann 13. mars 2024 kl. 16.00.
Tilnefningarnefnd gegnir ráðgefandi hlutverki vegna kjörs til stjórnar bankans og leggur fram rökstudda tillögu á þeim hluthafafundum þar sem kjör stjórnarmanna er á dagskrá, varðandi þá frambjóðendur sem tilnefningarnefndin telur best til þess fallna að taka sæti í stjórn bankans. Nánari upplýsingar um hlutverk tilnefningarnefndarinnar má finna í starfsreglum nefndarinnar, sem eru aðgengilegar hér.
Frambjóðendur sem vilja skila inn framboði til tilnefningarnefndarinnar eru beðnir um að fylla út sérstakt eyðublað, sem er aðgengilegt hér, og senda til nefndarinnar á netfangið nominationcommittee@arionbanki.is.
Tilnefningarnefndin mun ekki leggja mat á framboð sem berast eftir 21. febrúar. Fyrirhugað er að tilnefningarnefndin muni birta tillögu sína eigi síðar en 28. febrúar 2024.
Athugið að störf tilnefningarnefndarinnar og skilafrestur umsókna til hennar takmarka ekki rétt frambjóðenda til að skila inn framboðum til stjórnar bankans áður en almennur framboðsfrestur rennur út, sem er fimm (5) dögum fyrir aðalfund bankans, þ.e. þann 8. mars 2024 kl. 16.00.